Fastir pennar

Sumt gott og annað skrítið

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Fáum virðist vel við stofnanir ef marka má viðbrögð við tillögum Viðskiptaráðs sem kynntar voru í gær um að fækka ríkisstofnunum um meira en helming.

Flestar snúa tillögurnar að sameiningu stofnana, eða að því að safna þeim undir einn hatt, en í fimm tilvikum er lagt til að leggja stofnanir niður án þess að verkefnin færist annað hjá ríkinu.

Ýmislegt virðist skynsamlegt í tillögunum og verðskulda frekari skoðun, sér í lagi hvað varðar sameiningu eða samrekstur stofnana. Þá er réttilega bent á í skýrslu Viðskiptaráðs að þótt í henni sé bara fjallað um ríkisstofnanir þá séu víðar sóknarfæri í sameiningum. Sveitarfélög landsins séu 75.

„Viðskiptaráð hefur áður bent á hærri stjórnunarkostnað og óhagræði í formi lakari þjónustu sem íbúar fámennra sveitarfélaga þurfa að búa við. Að mati ráðsins ætti að fækka sveitarfélögum í tólf,“ segir þar og um leið stungið upp á að eftirlitsstarfsemi ætti að færa frá sveitarfélögum undir einn hatt, bæði til hagræðingar og aukinnar samræmingar í vinnubrögðum.

Annað í samantekt ráðsins virðist hins vegar enga skoðun standast. Þannig má velta fyrir sér gildi fullyrðinga um kostnað „örríkisins“ Íslands af því að halda úti stofnanakerfi sem er sambærilegt við það sem í öðrum löndum gerist.

Á vef Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) má til dæmis fletta upp kostnaði hins opinbera og bera saman á milli landa. Hér var hann árið 2013 44,1 prósent af vergri landsframleiðslu, sem er undir meðaltali OECD upp á 45,9 prósent. 

Við erum á pari við Norðmenn (44,0 prósent) og eyðum miklu minna en Finnar (57,6 prósent), Danir (56,6 prósent) og Svíar (52,4 prósent).

Krónutölusamanburður sýnir svo að á mann eru opinber útgjöld Norðmanna 56,5 prósentum meiri en hér og útgjöld Finna, Svía og Dana 24,7 til 35,4 prósentum meiri.

Þá eru hugmyndirnar misvel ígrundaðar.

Í það minnsta er erfitt að sjá möguleika á miklum sparnaði við að safna framhaldsskólum hvers landshluta í sérstofnun, svo sem stofnunina Framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu. Vandséð er að þar sé verið að gera mikið annað en búa til nýja yfirmannsstöðu. Skólarnir þurfa áfram sinn skólameistara og starfsfólk.

Eins er vandséð að sátt náist um aflagningu ÁTVR, en landsmenn hafa verið ánægðir bæði með þjónustu fyrirtækisins og árangur sem hér hefur náðst í að draga úr unglingadrykkju. Óljóst er hvað á að vinnast með niðurlagningu þeirrar stofnunar annað en að uppfylla blauta drauma þeirra sem vilja hlut ríkisins sem minnstan á öllum sviðum.

Skoðun Viðskiptaráðs er ágætis innlegg í umræðu um hvernig hagræða má í ríkisrekstri, að því gefnu að vanhugsaðri þættir hennar verði ekki til þess að fólk ýti henni til hliðar sem einhverri frjálshyggjufantasíu.


Tengdar fréttir

Vilja fækkun stofnana

Meðlimir stjórnarflokkanna fagna umræðunni um fækkun stofnana. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja góð rök geta verið fyrir sameiningu.

Leggja til að fækka ríkisstofnunum úr 188 í 70

Ísland er örríki í alþjóðlegum samanburði. Kostnaður af því að halda úti stofnanakerfi sem jafnast á við mun fjölmennari þjóðir er gríðarlegur, því leggur Viðskiptaráð Íslands til að fækka ríkisstofnunum úr 188 í 70. Þetta kemur fram í nýrri skoðun Viðskiptaráðs, Sníðum stakk eftir vexti, 30 tillögur að fækkun ríkisstofnana.






×