Lífið

Það sem við höfum að hlakka til árið 2016

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Hlaupár



Líkt og alþjóð veit þá kemur hlaupár á fjögurra ára fresti. Þá bætist dagur við febrúarmánuð og þó nokkrir einstaklingar fá loksins að halda upp á afmæli á réttum degi. Hlaupárin eru til þess að leiðrétta skekkju í tímatali sem orsakast af því að árstíðarárið er í raun og veru 365,2422 dagar.



EM í fótbolta



Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tekur í fyrsta sinn þátt á stórmóti í Frakklandi í sumar. Biðin eftir þessari stundu hefur verið mikil og er búist við því að mörg þúsund Íslendinga taki sér sumarleyfi í sömu vikunum í júní. Strákarnir spila fyrsta leikinn þann 14. júní gegn Portúgölum í Saint-Etienne í S-Frakklandi.









Ólympíuleikarnir



Sumarólympíuleikarnir munu fara fram í Ríó í Brasilíu í ágúst. Það verður í fyrsta skiptið sem borg í S-Ameríku heldur Ólympíuleikana en aðrar borgir sem komu til greina voru Tókýó, Chicago og Madrid. Leikarnir fóru seinast fram í London og vöktu mikla lukku. Þetta ár verður í fyrsta sinn sem keppt verður í rugby og í fyrsta sinn frá því árið 1904 sem keppt verður í golfi. Fimm Íslendingar eru komin með þátttökurétt á leikunum. Það eru þær Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir í frálsíþróttum og Anton Sveinn McKee, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir í sundi.



Zoolander 2



Mikil eftirvænting hefur verið eftir framhaldinu af Zoolander sem verður 15 ára á næsta ári. Zoolander 2 er væntanleg í kvikmyndahús í febrúar. Mikið kynningarstarf hefur verið í kringum myndina, eins og til dæmis þegar Derek og Hansel mættu á tískusýningu Valentino í París fyrr á árinu. Þeir hafa fengið mikið af heimsþekktum leikurum til þess að koma fram í myndinni á borð við Penelope Cruz, Kristen Wiig og Benedict Cumberbatch.

Forsetakosningar í BNA



Það hefur verið mikið fjaðrafok yfir komandi forsetakosningum Bandaríkjanna. Það er útlit fyrir að Hillary Clinton, fyrrverandi forsetafrú, verði framboðsefni demókrata en enn er óljóst hver tekur slaginn fyrir repúblikana. Donald Trump hefur haldið forskoti á mótframbjóðendur sína innan Repúblikanaflokksins en Ted Cruz, sem hefur verið að auka fylgi sitt, nálgast hann óðfluga. Donal Trump hefur valdið miklu fjaðrafoki með ummælum sínum um innflytjendamál í Bandaríkjunum og hefur meðal annars látið út úr sér að hann vilji meina múslimum inngöngu í Bandaríkin.



Forsetakosningar á Íslandi



Það hefur ekki farið jafn mikið fyrir komandi forsetakosningum á Íslandi og í Bandaríkjunum en það mun líklega breytast þegar það líður á árið. Þorgrímur Þráinsson hefur lýst yfir að hann ætli að bjóða sig fram og Halla Tómasdóttir hefur sagt frá því að hún sé að íhuga framboð. Það sem landsmenn eru hins vegar að bíða eftir er að Ólafur Ragnar Grímsson núverandi forseti taki ákvörðun um hvort hann ætli að bjóða sig aftur fram. Líklega munu fleiri bjóða sig fram þegar fram líða stundir en gengið verður til kosninga 25. júní.







DC Comics frumsýna tvær stórmyndir



Ofurhetjur DC Comics hafa ekki verið áberandi seinustu ár og hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir Marvel ofurhetjunum sem hafa slegið í gegn í Avengers, Thor og Iron Man myndunum. Á því verður breyting á þessu ári þar sem tvær stórmyndir úr röðum DC Comics verða frumsýndar. Batman vs Superman: Dawn of Justice verður frumsýnd í mars og Suicide Squad verður frumsýnd í ágúst. Mikil spenna ríkir fyrir báðum myndunum.

Justin Bieber heldur tónleika á Íslandi



Líklega stærsta stjarna heims um þessar mundir og mest spilaði tónlistarmaður á internetinu í dag ætlar að hefja tónleikaferð sína um Evrópu hér á landi í Kórnum þann 9. september. Hann kom til landsins á þessu ári og hefur greinilega verið heillaður upp úr skónum þar sem hann ætlar að vera á landinu viku fyrir tónleikana að æfa sig áður en hann heldur svo áfram að spila um Evrópu. Tónleikarnir verða þeir allra stærstu sem haldnir hafa verið á landinu.





Ný breiðskífa Kanye West og Rihönnu



Kanye West kemur til með að sýna Yeezy Season 3 á New York Fashion Week í byrjun febrúar. Hann tilkynnti Twitter fylgjendum sínum á dögunum að hann væri að vinna í því að klára fatalínuna og nýjustu plötu sína, SWISH, sem kemur líklega út á næsta ári. Rihanna er einnig að vinna í sinni plötu, Anti, sem er sögð vera nánast tilbúin og kemur líklega út í lok þessa árs eða byrjun 2016. Hún mun einnig koma fram í fyrsta sinn á New York Fashion Week með tískulínu sinni Rihanna for Puma. Þrátt fyrir að það hafi ekki komið opinber tilkynning þess efnis þá hélt hún uppboð í mánuðinum þar sem meðal annars var hægt að bjóða í miða á tískusýninguna.


Tengdar fréttir

Aníta komin á Ólympíuleikana

Alþjóðafrjálsíþróttasambandið breytti lágmörkum fyrir nokkrar greinar í gær og með því komst Aníta Hinriksdóttir til Ríó á næsta ári.

Bieber staðfestir komu sína í Kórinn

Kanadíska poppgoðið blæs á efasemdaraddir um að hann sé ekki raunverulega að koma til landsins eins og íslenskir aðdáendur hafa látið í veðri vaka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×