Lífið

Tix.is um Bieber-miðasöluna: Of hratt hleypt inn í röðina

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mjög hratt seldist upp á tónleika Justin Bieber.
Mjög hratt seldist upp á tónleika Justin Bieber. Vísir/Getty
Mikil óánægja ríkir meðal þeirra sem ekki náðu í miða á tónleika Justin Bieber og virðist reiðin helst beinast að því fyrirkomulagi sem var á miðasölunni.

Í skilaboðum frá Tix.is sem birtast á Facebook-síðu þeirra og má sjá hér fyrir neðan segir að ekki hafi væri hægt að tryggja að þeir sem fengið hefðu lægra númer í röðinni gætu keypt miða á tónleikana á undan þeim sem fengu hærri númer vegna þess hversu hratt var hleypt inn.

Sjá einnig: Uppselt á Bieber: Seldist upp á hálftíma

Miðasalan hófst klukkan 10 í morgun á miðasöluvef Tix.is. Líkt og Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu, hefur staðfest við Vísi voru tæplega 10.000 miðar til sölu í dag.

Fyrirkomulagið var þannig að fólk fór í röð eftir miðum og þegar röðin var komin að þér var hægt að kaupa allt að fjóra miða. Líkt og komið hefur fram var eftirspurnin mikil en líkt og sjá má hér til hliðar voru um 11.000 aðilar í röðinni þegar mest lét.

 

Skjáskot
Sjá einnig: Sena: Skoðum möguleikana á því að halda aukatónleika með Bieber

Í athugasemdum við frétt Vísis um að uppselt hafi verið á tónleikana og á Facebook-síðu Tix.is sést að margir eru reiðir og kvarta yfir því að hafa ekki fengið miða, þrátt fyrir að hafa verið framarlega í röðinni.

Einn segir: „Vorum númer 466 en fengum engan miða þetta er ekki í lagi komst inn kl 10,32 en eingir miðar til,“ og annar segir: „Var númer 575 en fékk enga miða. Ekki reyna að segja að það hafi veri 10000 miðar til sölu eftir forsöluna ! Bull.is.“

Svo virðist því sem að fólk sem var staðsett mjög framarlega í röðinni, jafnvel svo framarlega sem númer 400 í röðinni hafi ekki fengið miða.

Sjá einnig: Örvænting greip um sig í Bieber-forsölunni

Spyrja því margir hvernig það geti staðist að fólk svo framarlega hafi ekki getað nælt sér í miða miðað við að um tæplega tíu þúsund miðar voru í boði og hver og einn mátti aðeins kaupa fjóra miða.

Tix.is hefur gefið út útskýringu á Facebook síðu sinni sem er svohljóðandi:

 

Mun meiri eftirspurn var eftir miðum en miðar í boði, þar af leiðandi fengu ekki allir miða sem reyndu að kaupa. Þegar...

Posted by tix.is on Saturday, 19 December 2015
Starfsmenn Tix.is töldu sig ekki geta svarað fyrirspurnum Vísis við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×