Formúla 1

Wolff: Samband ökumanna stærsti veikleiki Mercedes

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Samband ökumanna Mercedes þarf að batna til að þeir verði báðir áfram hjá heimsmeisturunum.
Samband ökumanna Mercedes þarf að batna til að þeir verði báðir áfram hjá heimsmeisturunum. Vísir/Getty
Mercedes liðið gæti valið að losa annan núverandi ökumanna sinna undan samningi ef samband þeirra hefur áhrif á árangur liðsins, segir Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

Samband ökumannanna tveggja, Lewis Hamilton og Nico Rosberg hefur ekki verið gott og hefur ekki batnað undanfarið.

Samkvæmt Wolff hefur soðið upp úr nokkrum sinnum að undanförnu. Samband Hamilton og Rosberg versnar með hverri keppni.

Wolff segir að samband ökumannanna sé farið að hafa áhrif á liðið. Hann segir að samband þeirra sé stærsti veikleiki liðsins.

„Samband ökumanna er okkar stærsti veikleiki - stundum er sambandið milli liðsins og ökumanna líka erfit,“ sagði Wolff.

Wolff viðurkennir að liðið gæti neyðst til að skipta út ökumanni ef ástandið batnar ekki.

„Þegar við horfum fram á veginn þurfum við að hafa í fyrirrúmi það sem er best fyrir liðið,“ bætti Wolff við.

„Ef við teljum að ökumaður sé ekki að fylgja stefnu, anda og hugmyndum liðsins, gætum við tekið ákvörðun varðandi ökumenn í framtíðinni,“ sagði Wolff.

„Ég tel mikilvægt að hafa hæfileikaríka og hraða ökumenn í bílunum. En við viljum vinna með einhverjum sem er þægilegt að vinna með,“ sagði Wolff að lokum.


Tengdar fréttir

Rosberg: Ég er bara fljótari núna

Nico Rosberg náði sjötta ráspólnum í röð. Hann tryggði Mercedes 18. ráspólinn á tímabilinu. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Nico Rosberg vann lokakeppnina í Abú Dabí

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í síðustu keppni tímabilsins. Lewis Hamilton varð annar á Mercedes og Kimi Raikkonen varð þriðji á Ferrari.

Rosberg: Ég væri til í að byrja næsta tímabil á morgun

Nico Rosberg kom fyrstur í mark í lokakeppni tímabilsins, hann var þar með sína þriðju keppni í röð. Mercedes bætti stigametið í heimsmeistarakeppni bílasmiða, með því að ná fyrsta og öðru sæti í keppni dagsins. Hver sagði hvað eftir keppnina?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×