Matur

Hjartaylur

Rikka skrifar
visir/kornax

Þessar smákökur eru alveg óskaplega góðar og hlutu annað sæti í smákökukeppni Kornax árið 2014.

2. sæti Chavdar Ivanov

Hjartaylur

Botn:

140 g ósaltað smjör

50 g rjómaostur

110 sykur

160 g ljós púðursykur

1 ¼ tsk. vanilludropar

2 stór egg

340 g Kornax hveiti

1 tsk. matarsódi

1 tsk. salt

300 g Nóa Síríus súkkulaðidropar

Hrærið smjör, rjómaost, sykur, púðursykur og vanilludropa saman í 2 mín. Bætið eggjum út í, einu í einu. Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál og bætið út í. Blandið súkkulaðidropum saman við. Geymið blönduna í ísskáp í 2 klst. upp í 3 daga. Hitið ofninn í 190°C. Setjið deigið í toppa á bökunarplötu ( u.þ.b. 2-3 tsk.). Bakið í 9-11 mín. Smyrjið kökurnar með kreminu.

Krókant:

100 g sykur

70 g muldar heslihnetur

Setjið sykur og heslihnetur á pönnu og hitið þar til þið fáið fallega karamellu. Látið blönduna kólna á bökunarpappír í þunnu lagi. Brjótið í mjög litla bita.



Krem:

3 eggjarauður

70 g flórsykur

150 g smjör

Þeytið eggjarauður og sykur saman í vatnsbaði þangað til blandan þykknar. Bætið smjöri saman við og haldið áfram að þeyta þangað til blandan er orðin létt og þykk. Setjið krókant út í.


Tengdar fréttir

Jólakossar og rúlluterta

Margrét Jóhannsdóttir bakar yfirleitt sex til sjö smákökusortir fyrir jólin auk þess að gera rúlluterturnar sem amma hennar gerði alltaf. Rúlluterturnar eru bornar á borð á jóladag og eru ósnertanlegar þangað til.

Kökupinnar í nýju ljósi

Kökupinnar hafa aldeilis verið vinsælir en þá er hægt að gera í allskyns útgáfum

Verðlauna konfektkökur

Smákökusamkeppni Kornax er haldin árlega við mikinn fögnuð áhugafólks um smákökubakstur. Það er ekki úr vegi að rifja upp vinninghafann frá því í fyrra og leyfa uppskriftinni að fylgja með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×