Erlent

Obama segir þjóðina ekki láta skotárásina skelfa sig

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Obama segir í yfirlýsingu vegna skotárásarinnar, sem gerð var á jólaveislu starfsfólks miðstöðvar fyrir fólk með þroskahömlun rannsökuð sem hryðjuverk, að þjóðin sé sterk.
Obama segir í yfirlýsingu vegna skotárásarinnar, sem gerð var á jólaveislu starfsfólks miðstöðvar fyrir fólk með þroskahömlun rannsökuð sem hryðjuverk, að þjóðin sé sterk. Vísir/EPA
Barack Obama Bandaríkjaforseti segir að þjóð sína ekki láta skelfa sig með skotárásinni í San Bernardino í síðustu viku. „Við erum sterk og við erum óbugandi,“ sagði hann í tilkynningu. Greint var frá því í gær að skotárásin væri rannsökuð af bandarísku alríkislögreglunni FBI sem hryðjuverk. 

Í árásinni drápu hjónin Syed Rizwan, 28 ára, og Tashfeen Malik, 27 ára, fjórtán áður en þau voru sjálf skotin af lögreglu. Rizwan hafði lýst yfir hollustu við samtökin ISIS áður en þau réðust til atlögu. Hafa samtökin lýst velþóknun sinni á árásinni og kallað hjónin stuðningsmenn Íslamska ríkisins.

Engar vísbendingar eru um hvort ISIS hafi aðstoðað hjónin við undirbúning árásarinnar, sem gerð var á jólaveislu starfsfólks miðstöðvar fyrir fólk með þroskahömlun.


Tengdar fréttir

Lýsti yfir hollustu við ISIS

Tashfeen Malik, annar árásarmannana í skotárásinni í San Bernardino í Kaliforníu á miðvikudag lýsti yfir hollustu við leiðtoga ISIS áður en að skotárásin var framin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×