Fótbolti

Alfreð skoraði þegar hann fékk loksins tækifæri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alfreð í leik með Olympiakos á dögunum.
Alfreð í leik með Olympiakos á dögunum. Vísir/getty
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Olympiacos í 4-3 sigri á Panthrakikos í 13. umferð grísku úrvalsdeildarinnar en þetta var í fyrsta sinn sem Alfreð var í byrjunarliði gríska liðsins frá því 23. ágúst.

Alfreð sem gekk til liðs við Olympiakos í sumar á láni frá Real Sociedad hefur þurft að sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá grísku meisturunum þrátt fyrir að hafa skorað sigurmark liðsins gegn Arsenal á Emirates-vellinum.

Alfreð krækti í vítaspyrnu á 48. mínútu sem Konstantinos Fortounis nýtti en fimmtán mínútum síðar var komið að Alfreði á vítapunktinum og nýtti hann vítaspyrnuna og skoraði þriðja mark Olympiakos eftir að Estabian Cambiasso nældi í vítaspyrnu.

Alfreð lék allar nítíu mínútur leiksins fyrir Olympiakos sem hefur unnið alla 13 leiki liðsins á þessu tímabili en framundan er mikilvægur leikur gegn Arsenal á miðvikudaginn þar sem sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×