Jól

Langar í könguló í jólagjöf

Adam Ómar Ómarsson 6 ára
Adam Ómar Ómarsson 6 ára
Adam Ómari, nemanda í Seljaskóla, þykir gott að vera heima um jólin og horfa á bíómyndir. Hann var spurður út í jólahald á dögunum.

Hlakkar þú til jólanna?
 Já, af því þá fæ ég dagatal á morgnana?

Hvað gerist um jólin? Þá fær maður pakka og jólatré.?

Hvað gerir þú um jólin? Ég fer oftast heim og horfi á bíómyndir?

Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Mig langar í könguló sem getur labbað, sko dótakönguló.

Þekkirðu jólasveinana? Já, ég þekki alla og Stekkjastaur er uppáhalds?

Hvernig setja jólasveinarnir í skóinn? Þeir eru með stiga og klifra upp og setja í skóinn í gegnum gluggann sem er opinn.


Tengdar fréttir

Jólasveinarnir búa í helli

Grýla setur óþekk börn í poka og borðar þau síðan samkvæmt Máneyju Þuru sem var spurð út í jólin ásamt fleiri börnum úr Seljaskóla.

Guð á afmæli á jólunum

Kristján Helgi Garðarsson, nemandi í Seljaskóla, fer á sleða og snjóbretti um jólin. Hann segir jólin vera haldin í tilefni þess að guð á afmæli en Kristján var spurður út í jólahald á dögunum.

Kertasníkir í uppáhaldi

Alma Fenger, nemandi í Seljaskóla, var spurð út í jólin og tilgang þeirra.

Erfið leiðin að jólaskónum

Stefán Pétur Bragason, telur að jólasveinarnir brjóti glugga til að koma góssi í skó barna. Hann og fleiri nemendur Seljaskóla voru spurðir út í jólin á dögunum.






×