Viðskipti innlent

Sigurður segir saksóknara vefa lygavef

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurður Einarsson sést hér fyrir miðri mynd í dómsal í dag.
Sigurður Einarsson sést hér fyrir miðri mynd í dómsal í dag. vísir/stefán

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, kvaðst fyrir dómi í dag ekki haft neina aðkomu að þeim lánveitingum sem hann er ákærður fyrir í CLN-málinu. Sigurður er ákærður, ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrir umboðssvik vegna lánveitinga til eignarhaldsfélaga skömmu fyrir bankahrun.



Lánin, sem hljóðuðu upp á 510 milljónir evra, voru notuð til að kaupa lánshæfistengd skuldabréf, sem voru tengd skuldatryggingarálagi Kaupþings. Áttu kaupin að lækka skuldatryggingarálag bankans sem hafði hækkað mikið en lánin voru veitt á tímabilinu ágúst til október 2008.



Er það mat ákæruvaldsins að Hreiðar og Sigurður hafi farið út fyrir heimildir sínar til lánveitinga og stefnt fjárumunum bankans í hættu en Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, er ákærður fyrir hlutdeild í brotum Hreiðars og Sigurðar.



Ákærður fyrir umboðssvik án umboðs

Tekin var skýrsla af Sigurði í dag en áður en Björn Þorvaldsson, saksóknari, tók til við að spyrja hann út í ákæruefnin ávarpaði Sigurður dóminn en skapast hefur ákveðin hefð fyrir því að sakborningar í hrunmálunum geri það.



Sagði Sigurður að hann væri nú enn á ný ákærður fyrir umboðssvik þrátt fyrir að Hæstiréttur hefði sýknað hann af ákæru um slíkt brot þar sem hann hefði ekki sem stjórnarformaður haft neitt umboð til að lána fé frá Kaupþingi. Sagði Sigurður að þrátt fyrir þetta hefði saksóknarinn ekki breytt ákærunni í CLN-málinu og væri honum ef til vill vorkunn. 





Vandaði saksóknara ekki kveðjurnar


Áður hafði komið til snarpra orðaskipta á milli Björns saksóknara og Hreiðars Más þegar sá síðarnefndi flutti ávarp sitt, og þó að slíkt hafi ekki verið upp á teningnum í tilfelli Sigurðar, þá vandaði hann engu að síður saksóknara ekki kveðjurnar:

„Hann hefur einungis svarað mér með hroka og yfirlæti þegar ég hef leitað eftir því að hann leiðrétti það sem hann gerði rangt. Ég á því miður ekki von á öðru en að saksóknarinn Björn Þorvaldsson haldi áfram að vefa lygavef sinn hér eins og áður eins ömurlegt og það er að þurfa að búast við slíku.“



Líkt og Hreiðar Már sagði Sigurður að staða Kauþings hafi verið góð þegar lánin voru veitt. Bankinn hefði staðið traustum fótum og einfaldast því til sönnunar væri að skoða eiginfjárstöðu, lausafjárstöðu og þróun Kaupþings.





Sagði allt hafa breyst við yfirtöku Glitnis

Sagði Sigurður tölurnar tala sínu máli en yfirtaka Seðlabanka Íslands á Glitni hefði hins vegar breytt öllu. Sú ákvörðun, sem og setning neyðarlaganna þann 6. október 2008, hefðu sett Kaupþing í þrot.



„Vel má vera og er ekki til umfjöllunar hér að einhverjir telji minni hagsmunum fórnað fyrir meiri með yfirtöku Seðlabankans á Glitni og setningu neyðarlaga. Það er hins vegar verið að gera tilraun til þess að hengja bakara fyrir smið í þessum réttarhöldum og er það ekki góð latína svo ekki sé meira sagt,“ sagði Sigurður.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×