Formúla 1

Mercedes sakar verkfræðing Ferrari um njósnir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ætli aðgerðir Hoye verði til þess að minnka bilið frá Mercedes aftur til Ferrari á næsta ári?
Ætli aðgerðir Hoye verði til þess að minnka bilið frá Mercedes aftur til Ferrari á næsta ári? Vísir/Getty
Mercedes ætlar að stefna fyrrum verkfræðingi sínum sem nú vinnur hjá Ferrari fyrir að afrita trúnaðarskjöl meðan hann vann enn hjá Mercedes.

Benjamin Hoyle tilkynnti uppsögn sína hjá Mercedes í maí síðastliðnum. Hann hafði fengið vinnu hjá helstu keppinautum Mercedes, Ferrari. Hann átti að hefja störf þar í desemberbyrjun.

Mercedes telur hoyle hafa tekið afrit af trúnaðarskjali tengdu ungverska kappakstrinum. Skjalið innihélt upplýsingar um stöðu véla liðsins og lausn við dulkóðun sem liðið notar samkvæmt heimildum Bloomberg fréttaveitunnar.

Mercedes hefur samkvæmt Bloomberg sönnun fyrir því að Hoyle hafi haldið áfram að skoða trúnaðarskjöl eftir uppsögn sína og að hann hafi reynt að hylja slóð sína.

Málsókninni er einungis beint gegn Hoyle en ekki Ferrari. Mercedes telur þó að Ferrari gæti notið góðs af þessum upplýsingum sem fengnar voru á ólögmætan hátt.

Mercedes vill koma í veg fyrir að Hoyle starfi hjá Ferrari eða einhverju öðru Formúlu 1 liði þangað til eftir tímabilið 2016.

„Við höfum gripið til viðeigandi lagalegra aðgerða til að vernda þekkingu liðsins,“ segir í yfirlýsingu Mercedes.

„Aðgerðir Hoyle voru til þess fallnar eyðileggja eða skaða alvarlega samband sem byggir á trausti. Hoyle og hugsanlega Ferrari hafa hagnast á ólögmætan hátt af ólöglegum aðgerðum hans,“ segir einnig í yfirlýsingunni.


Tengdar fréttir

Rosberg: Ég er bara fljótari núna

Nico Rosberg náði sjötta ráspólnum í röð. Hann tryggði Mercedes 18. ráspólinn á tímabilinu. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Rosberg: Ég væri til í að byrja næsta tímabil á morgun

Nico Rosberg kom fyrstur í mark í lokakeppni tímabilsins, hann var þar með sína þriðju keppni í röð. Mercedes bætti stigametið í heimsmeistarakeppni bílasmiða, með því að ná fyrsta og öðru sæti í keppni dagsins. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Ecclestone treystir á að Vettel endi einokun Mercedes

Bernie Ecclestone, einráður í Formúlu 1 treystir á að Sebastian Vettel verði heimsmeistari ökumanna árið 2016 með Ferrari. Ecclestone vill sjá einhvern binda enda á drottnun Mercedes sem hann telur ekki góða fyrir íþróttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×