Innlent

Innanríkisráðherra segir Reykjavíkurflugvöll verða óbreyttan um ófyrirséða framtíð

Heimir Már Pétursson skrifar
Innanríkisráðherra segir Reykjavíkurflugvöll verða í óbreyttri mynd um ófyrirsjáanlega framtíð eða þar til önnur lausn finnist á flugvallarmálum fyrir borgina. Það sé vont að djúpstæður ágreiningur ríki um málið milli borgarinnar og ríkisins og kannski best að skorið verði úr um málið fyrir dómstólum.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra skrifaði borgarstjóra bréf í gær þar sem hún ítrekaði að ríkið ætti Reykjavíkurflugvöll og tilkynnti að ekki stæði til að loka minnstu flugbraut flugvallarins. Borgin hefur hins vegar gefið út framkvæmdaleyfi á Hlíðarenda samkvæmt deiliskipulagi þar sem Valsmenn hf. fyrirhuga um 600 íbúða byggð sem myndi skarast við aðflug að flugbrautinni.

„Við erum ekki búin að taka neina stjórnvaldsákvörðun um að loka þessari flugbraut. Brautin er hluti af Reykjavíkurflugvelli. Þetta mál er eins og allir sjá hefur verið í miklum ágreiningi milli ríkis og borgar og það er auðvitað mjög vont fyrir alla. En ég held að það þýði heldur ekki að horfa framhjá því að svona er ekki hægt að halda áfram,“ segir Ólöf.

Innanríkisráðuneytið beri ábyrgð á innanlandsfluginu og það verði að vera tryggt til einhverrar framtíðar. Þá verði að ríkja vissa um að ákvarðanir sem teknar séu hafi ekki áhrif á öryggi flugvallarins til lengri tíma. Það komi ekki til greina að innanríkisráðuneytið taki skref til að draga úr örygginu.

Vísir/Vilhelm
Ráðuneytið er ekki að brjóta samkomulag við borgina

En hvað með þetta samkomulag sem borgin vísar til frá árinu 2013, teljið þið að ekki sé verið að brjóta gegn því með þessari ákvörðun?

„Nei, við teljum að það sé yfirlýsing í tengslum við annað samkomulag sem felur ekki í sér bein réttaráhrif. Heldur þurfi ýmislegt annað að koma til svo af því hefði getað orðið og sú staða er ekki komin upp ennþá,“ segir innanríkisráðherra.

Lengi var beðið eftir niðurstöðu Rögnunefndarinnar svo kölluðu sem komst að þeirri niðurstöðu að besti kosturinn í stöðunni væri að byggja flugvöll í Hvassahrauni. Ólöf segir alla gera sér grein fyrir að flugvöllur rísi ekki þar á næstunni miðað við aðstæður.

En skipulag Reykjavíkurflugvallar gildir aðeins til 2022, eða næstu sjö árin.

„Ég sé bara fyrir mér að það skiptir auðvitað mjög miklu máli að einhverntíma sé hægt að ná einhverri niðurstöðu sem er raunhæf. Það er náttúrlega alveg óraunhæft að ætla að innanlandsflugið gufi einhvern veginn bara upp á einhverjum tilteknum degi.,“ segir Ólöf.

Og á meðan enginn annar flugvölur er kominn er það þín skoðun að flugvöllurinn verði óbreyttur þar sem hann er?

„Já það er mín skoðun,“ ítrekar innanríkisráðherra.

Hún segir ráðuneyti sitt hafa varað borgina við að gefa út bygginga- og framkvæmdaleyfi áður en niðurstaða fengist í málið, sem borgin ætlar nú með fyrir dómstóla.

„Það er ekki gott að til þessa sé komið. En á móti má segja að það blasir við öllum íbúum á Íslandi að þarna ríkir djúpur ágreiningur. Þegar svo er komið er kannski ágætt að lögsagan taki við,“ segir Ólöf Nordal.


Tengdar fréttir

Kúvending í afstöðu ríkisins

Ólöf Nordal neitar að loka flugbraut 06/24 eins og Reykjavíkurborg fer fram á. Borgin hefur því ákveðið að stefna ríki vegna vanefnda á gerðum samningum. Framkvæmdir Valsmanna tefjast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×