Fótbolti

Valbuena opnar sig um fjárkúgunarmálið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valbuena og Cisse.
Valbuena og Cisse. Vísir/Samsett mynd/Getty

Mathieu Valbuena, leikmaður Lyon og franska landsliðsins, tjáir sig í fyrsta sinn um fjárkúgun sem hann var beittur í sumar í viðtali við Le Monde í dag.

Eins og fjallað hefur verið um kærði Valbuena fjárkúgun sem hann varð fyrir í tengslum við kynlífsmyndband af honum. Karim Benzema, leikmaður Real Madrid og samherji hans í landsliðinu, flæktist svo inn í málið.

Sjá einnig: Fullyrt að Benzema hafi játað sök | Ákæra gefin út

Benzema var handtekinn eftir að hafa blandað sér í málið sem milliliður og hvatt Valbuena til að hitta vin sinn út af þessu máli. Benzema á eftir að fara fyrir dómara vegna málsins og gæti fengið refsingu.

„Innst inni finnst mér enn skrýtið að hann vildi að ég hitti þessa manneskju. Hann krafðist þess,“ sagði Valbuena í viðtalinu. „Þetta voru mér mikil vonbrigði.“

Sjá einnig: Benzema fær fullan stuðning Real Madrid

Valbuena segir mögulegt að myndbandinu hafi verið stolið af símanum hans þegar hann bað vin sinn um að aðstoða sig með símann. Hann segir að hann hafi fyrst heyrt um að myndbandið væri í dreifingu þegar Djibril Cisse, annar knattspyrnumaður, setti sig í samband við hann í maí árið 2015 og varaði hann við.

Valbuena segir þó að Cisse tengist málinu ekki á annan hátt heldur að hann hafi aðeins viljað vara hann við. Hann fékk svo símtal frá ónefndum aðila í júní þar sem honum var hótað. Þá fór Valbuena með málið strax til lögreglunnar.

Benzema var handtekinn af lögreglu.Vísir/Getty

Bað mig að hitta vin sinn

Málið var svo til rannsóknar hjá lögreglunni næstu vikur og mánuði. Þegar Valbuena fór til hennar í byrjun síðasta mánaðar, skömmu fyrir æfingu hjá franska landsliðinu, fékk hann þau skilaboð frá lögreglunni að mögulega myndi einhver liðsfélaga hans ræða við hann um myndbandið.

Það varð raunin þegar Karim Benzema steig fram. „Hann biður mig um að hitta vin sinn sem hann segir að sé afar traustur. Hann geti komið því í kring fyrir mig,“ segir Valbuena í viðtalinu.

Sjá einnig: Benzema og Valbuena ekki valdir í franska landsliðið

Lögreglan í Frakklandi mun hafa hlerað símtöl hjá Benzema þar sem fram kemur að hann viti meira um málið en hann hefur viljað gefa upp, enda hefur Benzema haldið fram sakleysi sínu.

„Ég er ekki heimskur. Ég þakkaði honum fyrir að vara mig við en ég veit vel að hann var ekki að krefjast þess að ég myndi hitta einhvern ókunnugan aðila út af engu,“ segir hann.

Benzema og Valbuena fagna marki í landsleik.Vísir/Getty

Skil þetta mætaval

Valbuena segir að Benzema hafi aldrei rætt um peninga eða neitt slíkt. „En þegar hann krefst þess ítrekað að ég hitti þennan vin hans - ég er ekki heimskur. Ég er 31 árs. Ég skil þetta mætavel.“

„Þetta er svo mikil vanvirðing. Það er ekki hægt að haga sér svona. Þrátt fyrir að Karim hafi aldrei talað um peninga þá er ljóst að ég er ekki að hitta þennan mann út af engu.“

Enn fremur segir Valbuena að hann geti þrátt fyrir allt ímyndað sér að spila aftur með Benzema í franska landsliðinu.


Tengdar fréttir

Benzema handtekinn vegna fjárkúgunar

Franska fréttastofan AFP segir að Real Madrid-stjarnan sé flæktur í fjárkúgunarmál tengt kynlífsmyndbandi franskrar knattspyrnustjörnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×