Innlent

Skýrsla kæranda lýsir notkun tóla

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi húsleit í íbúð í Hlíðunum þar sem meintar nauðganir eiga að hafa átt sér stað.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi húsleit í íbúð í Hlíðunum þar sem meintar nauðganir eiga að hafa átt sér stað. vísir/vilhelm
Í skýrslu annars brotaþola hjá lögreglu í kynferðisbrotamáli frá því í október kemur fram að annar meintra gerenda hafi bundið hendur hennar saman með keðju. Þá hafi hann slegið hana með svipu. Þetta staðfesta heimildir Fréttablaðsins. Lögreglan lagði hald á svipu og keðju við húsleit í íbúð í Hlíðunum.

Tvær kærur hafa verið lagðar fram í tveimur aðskildum kynferðisbrotamálum sem lögreglan hefur til rannsóknar og munu hafa átt sér stað í október.

Fréttablaðið greindi frá því á mánudag að íbúðin væri búin tækjum og tólum til ofbeldisiðkunar. Tveir karlmenn eru grunaðir um árásirnar. Annar er á fertugsaldri og stundar nám við frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem fórnarlömb árásanna stunda báðar nám. Hinn er á einnig á fertugsaldri og starfsmaður á hótelinu Reykjavík Marina. Hann hefur verið sendur í leyfi á meðan á rannsókn stendur.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
„Þetta er ekki í samræmi við lýsingar míns manns,“ segir Bjarni Hauksson verjandi annars meints gerenda. Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi hins, segir skjólstæðing sinn hvorki kannast við að hafa bundið stúlkuna og hvað þá slegið hana með svipu.

Fyrri árásin er sögð hafa átt sér stað eftir bekkjarskemmtun háskólanemanna á skemmtistaðnum Austur, í umræddri íbúð í Hlíðunum. Nokkru síðar mun árásin á hina konuna hafa verið gerð, í sömu íbúð, af báðum mönnunum eftir bekkjarskemmtun á Slippbarnum.

Umráðamaður íbúðarinnar er maðurinn sem starfaði hjá Reykjavík Marina, sem rekur Slippbarinn. Samkvæmt upplýsingum frá samnemendum kvennanna leikur grunur á að mennirnir hafi í það minnsta í öðru tilvikinu byrlað konunni ólyfjan áður en ráðist var á hana.

Lögreglan staðfestir að húsleit hafi verið gerð en vill ekki segja nákvæmlega hvaða muni var lagt hald á. Mennirnir tveir voru handteknir en þeim var sleppt að lokinni frumrannsókn lögreglu. Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Hefur það vakið hörð viðbrögð í samfélaginu og hafa hundruð manna krafist þess að mennirnir verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Lögreglan segir rannsókn málsins langt komna og í algjörum forgangi.

Vilhjálmur segir að mennirnir neiti báðir alfarið sök og segir gögn málsins og vitnisburði styðja framburð þeirra. Þá hefur hann lagt fram kæru á hendur stúlkunum fyrir rangar sakargiftir.


Tengdar fréttir

Stúlkurnar kærðar fyrir rangar sakargiftir

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi manns sem búið er að kæra fyrir að nauðga tveimur stúlkum í tveimur aðskildum málum, lagði fram kæru á hendur stúlkunum um rangar sakargiftir hjá lögreglu í gær.

Segir ekki refsivert að eiga tæki og tól

Yfirlögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir farbanni sjaldnast beitt gegn íslenskum ríkisborgurum. Tveir menn sem grunaðir eru um kynferðisbrot eru taldir vera farnir úr landi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×