Sport

Björgvin Karl og Katrín Tanja Íslandsmeistarar í Crossfit | Myndir

Anton Ingi Leifsson skrifar
Björgvin Karl er Íslandsmeistari í karlaflokki og Katrín Tanja í kvennaflokki.
Björgvin Karl er Íslandsmeistari í karlaflokki og Katrín Tanja í kvennaflokki. vísir/daníel
Björgvin Karl Guðmundsson og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru Íslandsmeistarar í Crossfit 2015, en Reebok Throwdown 2015, fór fram um helgina. Spennan var mikil fyrir lokadaginn, en lokagreinarnar fóru fram í Digranesinu í dag.

Björgvin Karl Guðmundsson, úr Crossfit Hengli, hafði tólf stiga forystu fyrir lokadaginn í dag. Hann hélt forystunni í dag og vann samanlagða stigakeppnina þrátt fyrir að hafa ekki unnið neina grein í dag.

Björgvin, sem fékk brons á síðustu heimsmeistaraleikum, vann með 818 stig, en næstur kom Jakob Daníel Magnússon, Crossfit Hafnarfirði, með 805 stig. Þriðja sætið hreppti Árni Björn Kristjánssonar úr Crossfit XY með 725 stig.

Sjá einnig: Björgvin Karl og Katrín Tanja leiða á Íslandsmótinu í Crossfit fyrir lokadaginn | Myndir

Spennan var líka mikil kvennamegin. Heimsmeistarinn Katrín Tanja Davíðsdóttir, Reebok Crossfit Reykjavík, leiddi fyrir lokadaginn í dag og hélt hún forystunni. Hún vann með fimmtán stiga mun, en hún vann eina grein í dag. Samtals hlaut Katrín Tanja 895 stig.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir úr Crossfit Suðurnes, þriðja sætið frá síðustu heimsmeistaraleikum, lenti í öðru sæti með 880 stig og Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Þuríður Erla Helgadóttir úr Crossfit Sport, lenti í þriðja sæti með 842 stig.

Katrín Tanja, til vinstri, stóð uppi sem sigurvegari, en Ragnheiður Sara, til hægri, lenti í öðru sæti.vísir/daníel
Í flokki 35-39 ára varð Arnar Elíasson úr Crossfit Hamri hlutskarpastur með 476 stig, en í kvennaflokki var það Ingunn Lúðvíksdóttir sem vann með 482 stig. Hún kemur úr Crossfit Sport. Harpa Melsteð úr Crossfit Hafnarfirði vann í flokki 40-44 í kvennaflokki með 482 stig, en hjá körlunum í flokki 40-44 vann Evert Víglundsson með 494 stig. Hann keppir fyrir Reebok Crossfit Reykjavík.

Í flokki 45-49 fékk Guðjón Arinbjörnsson 382 stig og stóð uppi sem meistari, en hann keppir fyrir Crossfit XY. Í kvennaflokki var það Þórdís Ingvadóttir úr Crossfit Akureyri sem vann með 394 stig. Í 50+ voru þrír keppendur karlamegin og þrír kvenanmegin, en Benedikt Hálfdanarson vann karlakeppnina með 388 stig. Hann keppir fyrir Crossfit Sport, en Ingibjörg Gunnarsdóttir vann hjá konunum með 400 stig. Hún keppir einnig fyrir Crossfit Sport.

Myndaveislu frá mótinu í boði Daníels Rúnarssonar má sjá hér efst í greinni og einnig verður innslag frá mótinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Vísir/Daníel

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×