Lífið

„Feitar“ íslenskar stelpur svara fyrir sig: „Good luck getting laid in Iceland“

Bjarki Ármannsson skrifar
Margar íslenskar konur hafa brugðið á það ráð að senda Peter myndir af sér að slafra í sig ýmis konar ruslfæði.
Margar íslenskar konur hafa brugðið á það ráð að senda Peter myndir af sér að slafra í sig ýmis konar ruslfæði. Vísir
Óhætt er að segja að ummæli Austurríkismannanna Thomas Meneweger og Peter Kreyci í samtali við blaðamann Vísis á Airwaves-hátíðinni í gær hafi ekki slegið í gegn meðal íslenskra netverja. Þeir félagar voru spurðir út í upplifun sína af Íslandi og bar holdafar íslenskra kvenna meðal annars á góma.

Thomas og Peter gleyma ferð sinni til Íslands sennilega ekki í bráð.Vísir/KTD
„Íslenski vinur okkar sagði í gær að íslensku stelpurnar væru orðnar alltof feitar. Ástæðan er víst sú að þær eru sólgnar í skyndibitann,“ sagði Peter. Þetta þótti mörgum lesendum stórmerkileg athugasemd, kannski ekki síst í ljósi þess að þeir Peter og Thomas voru sjálfir að borða skyndibita þegar blaðamann bar að garði.

„Ég er ekki stelpa,“ sagði Peter þegar honum var bent á þetta.

Margir hafa á samfélagsmiðlum gagnrýnt þá félaga (og raunar Vísi líka) fyrir þessi ummæli sem Peter hafði eftir óþekktum íslenskum vini. Vilja margir meina að þau beri merki um kvenfyrirlitningu og hafa margar íslenskar konur brugðið á það ráð að senda Peter myndir af sér að slafra í sig ýmis konar ruslfæði til að hæðast að honum.

Margar hafa deilt myndum sínum og skilaboðum á Facebook-hópinn Beauty Tips eða á sínar eigin síður. Nokkrar vel valdar eru birtar hér að neðan, með leyfi eigenda myndanna.

Þær Brynja og Heiður Anna fengu sér pítsu og merktu Peter á myndinni.

Just two "a bit too fat" icelandic girls eating 2 much skyndibiti

Posted by Brynja Helgadóttir on 6. nóvember 2015
Mynd/Nanna Hermannsdóttir
Nanna Hermannsdóttir fékk sér hamborgara og óskaði þeim félögum í einkaskilaboðum góðs gengis með að komast á sjéns á Íslandi.

Mynd/Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Þórhildur og vinkona segja skál við Peter - með munninn fullan af frönskum.

Mynd/Linda Steinarsdóttir
„Nennir einhver að segja þeim að troða þessum frönskum upp í rassgatið á sér,“ spurði Linda með þessari mynd á Beauty Tips.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×