Viðskipti innlent

Bjarni Benediktsson segir Símasöluna klúður

Sæunn Gísladóttir skrifar
Fjármálaráðherra segir enga þolinmæði í samfélaginu vera á sölu til útvalda.
Fjármálaráðherra segir enga þolinmæði í samfélaginu vera á sölu til útvalda. Vísir/Vilhelm
Bjarni Benediktsson segir sölu Arion banka á hlut í Símanum áður en almennt útboð átti sér stað vera klúður. Hann segir í samtali við RÚV að ólíðandi sé að fáir útvaldir búi á sérkjörum á sölu Arion banka á hlutum á Símanum. Það sé engin þolinmæði fyrir slíku í þjóðfélaginu.

Bjarni segir að hann sem fjármálaráðherra hafi ekki beina aðkomu að málinu, heldur sé það í höndum Bankasýslu ríkisins. Hins vegar hafi hann ákveðna skoðun á því.

Bjarni segir lærdóm hrunáranna vera að gæta þurfi jafnræðis í svona málum. Hann segist verða að lýsa ákveðinni furðu á því að þegar svona stór viðskipti eigi sér stað sé með mjög skömmu millibili hægt að finna kaupendur að sama hlutnum , eða hlut í sama félaginu, þar sem að munar jafn miklu og á við hér. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×