Innlent

Einn handtekinn vegna gruns um manndráp

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mikill viðbúnaður var á vettvangi
Mikill viðbúnaður var á vettvangi vísir/jóli
Einn hefur verið handtekinn vegna gruns um manndráp í búsetukjarna fyrir geðfatlaða við Miklubraut. Þetta staðfestir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi.

Mikill viðbúnaður var á staðnum skömmu eftir klukkan tíu í kvöld. Þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn og þar voru að auki fjórir lögreglubílar. 

Frekari upplýsingar hafa ekki fengist um málið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×