Innlent

Baltasar um stofnanda Deildu: „Hann stal frá mér Djúpinu“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
"Það er andstyggilegt fyrirbæri og sá maður sem stendur fyrir því er 'scum of the earth' fyrir mér. Hann stal frá mér Djúpinu,“ segir Baltasar um þann sem heldur úti Deildu.is.
"Það er andstyggilegt fyrirbæri og sá maður sem stendur fyrir því er 'scum of the earth' fyrir mér. Hann stal frá mér Djúpinu,“ segir Baltasar um þann sem heldur úti Deildu.is. Vísir/Getty
Baltasar Kormákur telur að háværir bloggarar hér á landi geri það meðal annars að verkum að íslenskir stjórnmálamenn séu hræddir að standa í lappirnar í umræðu um höfundarrétt á listum.

Umræða um komu Netflix til landsins undanfarna mánuði hefur verið nokkuð hávær auk þess sem Píratar, vinsælasti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt nýlegum könnunum, hafa endurtekið minnt á að leiðin til að verja höfundarétt sé ekki að loka síðum á borð við PirateBay og Deildu. Tilgangslaust sé að berjast gegn ólöglegu niðurhali með þeim hætti.

„Mér finnst þetta leiðinleg þróun,“ sagði Baltasar í viðtali í sjónvarpsþættinum Eyjunni á Stöð 2 í dag. Hann segist ekki telja Pírata geta staðið við yfirlýsingar sínar sem snúi að höfundarétti.

Helgi Hrafn Gunnarsson, kafteinn Pírata.vísir/vilhelm
Píratarnir hálfvolgir

„Mér finnst þeir vera hálfvolgir í þeirri umræðu,“ segir leikstjórinn og minntist á umræðuna um að fá Netflix hingað til landsins.

„Farðu á Netflix. Woody Allen hefur gert áttatíu bíómyndir. Ég held að það sé ein eftir hann þar,“ segir Baltasar og gefur þannig til kynna að það sé langt í frá þannig að hægt sé að finna allt sem mann langi í á Netflix. 

„Þetta er ákveðin frekja. Ef það er komið á markað vil ég fá það og helst borga ekki neitt.“

Everest, nýjasta furð Baltasars, er búin að hala inn á annað hundrað milljónir Bandaríkjadala á heimsvísu.Vísir/AFP
Heitir bloggarar hræða stjórnmálamennina

Leikstjórinn, sem hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarnar vikur samhliða mikilli velgengni nýjustu kvikmyndar sinnar Everest, segir að umræðan um þetta sé rosalega óvinsæl.

„Þeir sem eru heitastir í þessu eru bloggararnir. Mér finnst stjórnmálamenn vera hræddir við þetta.“

Baltasar hefur áhyggjur af því ef þessi háværa skoðun fái að ráða ríkjum.

„Það er ekki í neinu lagalegu umhverfi þar sem það er ásættanlegt að höfundarétti sé stolið og misnotaður.“

Djúpið eftir Baltasar kom út árið 2012.
Leggst svo lágt að selja auglýsingar

Hann minnir á að plötuútgáfa sé enn verr stödd en kvikmyndabransinn. Hann hefur áhyggjur hvað hreinlega verði um plötugútgáfu. Hann gefur ekki mikið fyrir niðurhalssíðuna Deildu.is.

„Það er andstyggilegt fyrirbæri og sá maður sem stendur fyrir því er ‘scum of the earth’ fyrir mér. Hann stal frá mér Djúpinu. Þetta er svo lágt því viðkomandi er að selja auglýsingar á þetta. Hann hefur tekjur af þessu og þykist vera að gera þetta í skjóli einhvers frelsis, sem er ekki. Menn vita hver þessi náungi er og hans skuldadagar munu koma.“

Baltasar segir að þetta sé síst andstyggilegt gagnvart sér en miklu frekar hjá kollegum hans sem berjist í bökkum.

„Það eru rosalega takmarkaðar tekjur af íslenskum kvikmyndum. Svo kemur einhver ‘low-life’ karakter og stelur þessu og setur inn á netið. Til að fólk geti horft á íslenskar bíómyndir ókeypis. Þú getur horft á þær ókeypis á RÚV ef þú bíður í smá stund. Maður biðlar til íslensku þjóðarinnar að láta þetta í friði.“

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×