Innlent

Lögreglan lýsir eftir Herði Björnssyni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hörður er 188 cm á hæð, grannur og með hvítt sítt hár og rautt skegg.
Hörður er 188 cm á hæð, grannur og með hvítt sítt hár og rautt skegg.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Herði Björnssyni sem er 25 ára. Talið er að hann sé klæddur í dökkan jakka, svartar buxur og gráa peysu.  Hörður er 188 cm á hæð, grannur og með hvítt sítt hár og rautt skegg.

Síðast er vitað um ferðir hans á Laugarásvegi í Reykjavík um kl. 04:00 sl. nótt og var hann þá ekki í skóm.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Harðar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í s. 444 1000.

Uppfært 18:30

Óskað er eftir að íbúar á höfuðborgarsvæðinu skoði vel nærumhverfi sitt en björgunarsveitamenn eru við leit á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×