Körfubolti

Körfuboltakvöld: Helena hefur allt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Strákarnir í Dominos körfuboltakvöldinu á Stöð 2 Sport skoðuðu frammistöðu Helenu Sverrisdóttur og Margrétar Köru Sturludóttur í Dominos-deild kvenna í gær.

Helena er komin aftur heim í Hauka eftir nokkurra ára útlegð í atvinnumennsku. Hún fór á kostum í liði Hauka eins og búist var við.

Margrét Kara er byrjuð aftur í körfubolta eftir tveggja ára hlé og hún færir nýliðum Stjörnunnar mikið enda náði liðið að stríða meistarakandidötunum.

„Helena er magnaður leikmaður sem hefur allt," sagði Kristinn Friðriksson, einn sérfræðinga þáttarins, um Helenu.

Strákarnir voru einnig hrifnir af Margréti Köru. „Það er eins og hún hafi aldrei farið í frí," sögðu þeir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×