Formúla 1

FIA bannar sölu ársgamalla véla

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ætli Daniel Ricciardo sé að grátbiðja Sebastian Vettel um að redda sér 2016 Ferrari vél?
Ætli Daniel Ricciardo sé að grátbiðja Sebastian Vettel um að redda sér 2016 Ferrari vél? Vísir/Getty
FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur meinað vélaframleiðendum í Formúlu 1 að selja ársgamlar vélar til viðskiptavina sinna.

Uppfærðar keppnisreglur frá FIA innihalda bann við sölu ársgamalla véla til liða sem keppa í Formúlu 1 en framleiða ekki eigin vél.

Breytingin er mikið áfall fyrir Toro Rosso liðið sem var nálægt því að ljúka samningaviðræðum við Ferrari um kaup á 2015 vélum liðsins til nota 2016.

Áhrif breytingarinnar gætu þó orðið þau að Red Bull verður í sterkari stöðu þegar það leitar véla fyrir næsta ár. Nú getur enginn boðið þeim að kaupa gamlar vélar. Talið er að Red Bull sé enn að reyna að semja við Ferrari um vélakaup. Ferrari vill, ef marka má orðróm einungis skaffa Red Bull 2015 árgerð af vélum.

Þessi breyting gæti þó gengið til baka ef einróma samkomulag allar liða fæst, fellur hún úr gildi.

Vélaframleiðendur í Formúlu 1 ætla að hittast í vikunni til að ræða hvernig megi auka frelsi til þróunar á miðju tímabili. Líklega verður þessi breyting líka rædd í þaula.


Tengdar fréttir

Mercedes er heimsmeistari bílasmiða

Eftir að Kimi Raikkonen hlaut refsingu er ljóst að Mercedes vann heimsmeistaratitil bílasmiða annað árið í röð.

Bílskúrinn: Rússnesk rúlletta

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark, Nico Rosberg hætti keppni og Kimi Raikkonen gerði Mercedes að heimsmeisturum bílasmiða 2015. Þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Hamilton fyrstur í mark í Rússlandi

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum í Rússlandi. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari. Sergio Perez kom Force India bílnum í þriðja sæti í mark á ótrúlegan hátt.

Finnskur árekstur á lokahringnum | Sjáðu atvikið

Finnskur árekstur á milli Bottas og Raikkonen á lokahring Formúlunnar í dag gerði það að verkum að Pérez gat skotist fram úr Raikkonen á lokametrunum og tekið síðasta sætið á verðlaunapallinum í Sochi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×