Innlent

Leita enn að Herði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ný mynd af Herði sem lögreglan sendi frá sér síðdegis.
Ný mynd af Herði sem lögreglan sendi frá sér síðdegis. mynd/lögreglan
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist vísbendingar vegna leitar að Herði Björnssyni en leit að honum hefur þó ekki enn borið árangur.

Lögreglan ítrekar því beiðni sína til almennings um leita vel í nærumhverfi sínu, til að mynda í húsum, skúrum bílum og görðum.

Síðast er vitað um ferðir Harðar á Laugarásvegi klukkan 04:00 þann 14. október. Þá var hann ekki í skóm. Talið er að hann sé klæddur í svartar buxur og gráa peysu (líkt og á meðfylgjandi myndum). Hann er 188 cm á hæð, grannur, ljóshærður og með rautt skegg.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Harðar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1828 eða með skilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar.

Hörður Björnsson.mynd/lögreglan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×