Bílar

BMW verkmiðja knúin kúaskít

Finnur Thorlacius skrifar
Kúaskítur verður að rafmagni fyrir verksmiðju BMW í S-Afríku.
Kúaskítur verður að rafmagni fyrir verksmiðju BMW í S-Afríku. Wallino
Verksmiðja BMW í S-Afríku verður að stórum hluta knúin gasi sem uppruninn er í kúaskít. BMW hefur það markmið að öll starfsemi þeirra sé knúin endurnýjanlegum orkugjöfum og notkun gassins í verksmiðju fyrirtækisins í S-Afríku færir það nær þessu takmarki.

Samningur BMW um notkun gassins tekur til næstu 10 ára og úr gasinu verður framleidd 4,4 megavött af rafmagni. Verksmiðja BMW er í nágrenni Pretoria, höfuðborg S-Afríku og framleiðsla rafmagnsins fer fram í 80 kílómetra fjarlægð frá henni.

Úrgangur úr um 30.000 nautgripum knýja þetta sérstaka orkuver og auk úrgangsins úr þeim kemur einnig við sögu annar lífrænn úrgangur sem safnað er af svæðinu í nágrenni hennar.

BMW segir að nú sé 51% allrar þeirrar orku sem fyrirtækið notar komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum og það hutfall muni aukast enn á næstunni, ekki síst með aukinni notkun sólarorku.

Í verksmiðjunni í S-Afríku eru framleiddir ríflega 60.000 BMW 3-series bílar á ári sem seldir eru bæði innanlands í S-Afríku og til útflutnings til annarra landa og frá upphafi hafi þessi verksmiðja framleitt eina milljón bíla. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×