Innlent

„Þetta er alltaf að síga á ógæfuhliðina“

Kristján Már Unnarsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Myndin er lýsandi fyrir ástandið.
Myndin er lýsandi fyrir ástandið. Vísir/Stöð 2

Miklar skemmdir hafa orðið á brúm, túnum og vegum vegna Skaftárhlaupsins. Þjóðvegur eitt er enn opinn þó vatn flæði víða beggja vegna við hann. Lögreglan er með viðbúnað ef til þess kemur að það þurfi að loka veginum síðar í dag eða á morgun.

Nokkuð hefur dregið úr rennsli Skaftár við Sveinstind og við Eldvatn við Ása. Rennsli er þó víða enn mikið í Skaftá og flóðið breiðir úr sér. Lögreglumenn skoðuð svæðið í morgun til að meta stöðuna.

„Það hefur minnkað töluvert rennslið hérna niðri við Eldvatnsbrúna niður við Ása en rennslið hér austur með þjóðveginum það hefur aukist svona hérna austur með hrauninu. Það er farið að renna yfir afleggjarann að Skál, alveg upp við þjóðveginn, það lekur beggja megin vegar þó það fari ekki yfir veginn neins staðar. Þá er að safnast beggja megin þjóðvegarins,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Staðan er ekki góð eins og sjá má.Vísir/Stöð 2

Sveinn segir töluverðar skemmdir hafa orðið á túnum bænda, sveitavegum og á brúm. Þá lokuðust tveir bæir af þar sem það flæddi yfir vegi að þeim. Tekist hefur að halda þjóðveginum opnum en aukin viðbúnaður er þó hjá lögreglunni ef það kemur til þess að loka þurfi. „Þetta tekur svo langan tíma að renna hérna í gegnum hraunið og svona áhrifin, endanlegu áhrifin, á þjóðveginn sjáum við ekkert kannski fyrr en í dag eða á morgun,“ segir Sveinn Kristján.

Hlaupið í Skaftá er það mesta frá því mælingar hófust árið 1971. Rennslið í ánni varð þegar mest var allt að tvöfalt meira en áður hefur sést. Bændur horfa margir hverjir upp á töluvert tjón á túnum sínum. Við bæinn Flögu líkist túnið helst stöðuvatni en vatnið er hærra en girðingarstaurar sem þar er að finna. Gunnar Sveinsson bóndi í Flögu segir að sér hafi ekki órað fyrir að svo mikið vatn myndi fylgja flóðinu.

„Þetta verður bara drulla og ógeð á þeim sko til að byrja með svo jafnar það sig að einhverju leyti. Þetta er alltaf að síga á ógæfuhliðina í þessu. Það brýtur stöðugt á og hækkar vatnsborðið,“ segir Gunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×