Tíska og hönnun

Lúxus og notagildi í bland

Sæbjörg rekur hönnunarstofuna S i D. Hún útskrifaðist sem innanhússhönnuður árið 2011 og hefur unnið við fagið síðan bæði á arkitektastofum erlendis og hérlendis. Hægt er að skoða verk hennar á heimasíðunni sid.is
Sæbjörg rekur hönnunarstofuna S i D. Hún útskrifaðist sem innanhússhönnuður árið 2011 og hefur unnið við fagið síðan bæði á arkitektastofum erlendis og hérlendis. Hægt er að skoða verk hennar á heimasíðunni sid.is MYNDIR/ANTON
Innanhússhönnuðurinn Sæbjörg Guðjónsdóttir segir eldhús og baðherbergi þau herbergi heimilisins sem skipta hvað mestu þegar kemur að því að selja eignir. Standi til að gera breytingar á þessum rýmum borgar sig því að vanda vel til verka og hugsa málin til enda. Sjálf keypti hún hús árið 2013 og hannaði maðal annars bæði bað og gestasalerni. Hún féllst á að sýna afraksturinn.

Hvernig myndir þú lýsa baðherbergjunum þínum?

„Baðherbergin eru tvö og hvort með sinn karakterinn. Aðalbaðherbergið er kvenlegra með frí­standandi kari, steyptu gólfi og marmara. Það má segja að það sé undir smá Parísar-áhrifum. Gestabaðherbergið er aðeins töffaralegra með svörtum flísum sem lagðar eru í „herringbone“ eða fiskibeinamynstur frá gólfi og upp í loft. Í sturtunni er svo lóðrétt óbein lýsing sem flæðir skemmtilega yfir flísarnar. Innréttingar og blöndunartæki eru eins á báðum baðherbergjunum; sprautulakkaðar með viðarborðplötu og vaski á borði. Tækin eru svört.“

Stærra baðherbergið er kvenlegra með frístandandi kari, steyptu gólfi og marmara. MYNDIR/ANTON
Á hvað lagðir þú áherslu – hver var innblásturinn?



„Mig langaði til að prufa eitthvað nýtt og njóta þess að hanna fyrir sjálfa mig og mína. Hugmyndin var að skapa notalega en skemmtilega stemningu – eitthvað í líkingu við herbergi á „boutique“ hótelum þar sem oft ríkir nútímalegt og útpælt þema,“ segir Sæbjörg en henni þykir gaman að hanna baðherbergi sem minna á hótelbaðherbergi. „Ég vil hafa smá lúxus í bland við notagildi enda verja flestir miklum tíma á baðherberginu.“ Gestabaðið var upphaflega minna en Sæbjörg og eiginmaður hennar stækkuðu það til að rýma fyrir sturtu. „Það er því frekar langt og mjótt en ég ákvað að leika mér að lengdinni með því að leggja flísarnar í fiskibeinamynstur sem beinist að endanum og heldur áfram upp vegginn og svo yfir loftið í sturtunni. Ég setti svo sérstaklega glært gler án festinga til að trufla ekki mynstrið.“

Hvaðan koma innréttingarnar, gólfefni og flísar?



Ég hannaði þær og fékk GKS til að smíða. Gólfið var steypt, pússað og mattlakkað. Flísarnar á gestabaðinu eru úr Flísabúðinni en ég lét saga þær niður til að gera mynstrið. Ég sérpantaði svo vaska og blöndunartæki frá Ástralíu því ég fann ekki það sem mig langaði í hér heima,“ segir Sæbjörg en hún er dugleg að fylgjast með nýjungum sem rata ekki alltaf hingað til lands. „Ég reyni alltaf að skapa eitthvað nýtt fyrir hvern viðskiptavin og reyni yfirleitt að sérpanta eitthvað frá útlöndum enda ekkert gaman að fá hönnuð til að hanna fyrir þig rými sem er svo bara alveg eins og hjá næsta manni,“ segir Sæbjörg en hún hefur komið að hönnun hótela, veitingastaða og verslana ásamt því að hanna fyrir einkaheimili og skrifstofur.“

Á gestabaðinu eru svartar flísar sem lagðar eru í fiskibeinamynstur.
Að hverju þarf að huga þegar baðherbergi er breytt?



„Ég mæli auðvitað með að fólk leiti til fagmanns sem kemur með góðar lausnir og hannar rýmið svo það nýtist sem best. Baðherbergi og eldhús eru þau herbergi sem selja hvað mest og mikilvægt að hugsa sig vel um áður en farið er af stað í breytingar. Það þarf að hugsa rýmið til enda og skipuleggja það vel.“

Að hverju þarf helst að huga varðandi lýsinguna?



„Hún hefur mikið að segja á baðherberjum og þarf að vera góð til að rýmið nýtist sem best. Að mínu mati þarf að vera góð blanda af beinni og óbeinni lýsingu. Oft breytir miklu að bæta dimmer á ljósin sem fyrir eru og best er að hafa þau ekki öll á sama slökkvara til að geta skapað mismunandi stemningu.“ Sé ljós staðsett beint fyrir ofan spegil og vask myndar það að sögn Sæbjargar skugga á andlitið. „Því þarf oft að bæta við vegglýsingu sem skín framan á andlit eins og margir kannast við í förðunarherberjum leikhúsanna. Þetta skiptir sérstaklega máli ef ætlunin er að mála sig við spegilinn.“

Hvaða skraut og fylgihlutir finnst þér tilheyra á baðinu?

„Það fer alveg eftir karakter íbúa. Mér finnst fólk þó mega vera aðeins djarfara ef það er með gesta­baðherbergi og nota til dæmis hringlaga spegil, skemmtilega vegglampa eða hangandi ljós. Það má líka alveg hugsa út fyrir kassann og skella myndum upp á vegg eða á hillu. Punkturinn yfir i-ið er svo auðvitað góður ilmur, sápur og kannski upprúlluð þvottastykki sem bíða gesta.“

Er einhver baðherbergistíska ríkjandi um þessar mundir?



„Mér finnst margir vera að gera þau aðeins persónulegri. Blöndunartæki í öðrum litum en krómi eins og til dæmis messing eða svörtu eru líka áberandi. Sömuleiðis opnar sturtur og frístandandi baðkör. Þá er ekki endilega verið að skella flísum á öll gólf og upp um alla veggi, enda þarf þess heldur ekki. Það er til dæmis vel hægt að nota málningu eins og Akrýl 7 frá Litalandi en hún er frábær í stað flísa. Þá finnst mér lögun og stærð flísa líka vera að breytast. Þessar hefðbundnu 30x60 eru að víkja fyrir skemmtilegum stærðum eins og 80x80 og 10X10 svo dæmi séu nefnd. Þegar kemur að fylgihlutum og skrauti má segja að Aesop og La:Bruket sápurnar tröllríði öllu ásamt fallegum grænum plöntum sem lífga upp á rýmið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×