Innlent

Unnið að því að koma öllum börnunum í grunnskóla

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Útlendingastofnun hefur í dag sótt um skólavist fyrir fimm börn í Reykjavík og vinnur nú að því að koma tólf börnum í Hafnarfirði í skóla.
Útlendingastofnun hefur í dag sótt um skólavist fyrir fimm börn í Reykjavík og vinnur nú að því að koma tólf börnum í Hafnarfirði í skóla. vísir/vilhelm
Útlendingastofnun vinnur nú að því í samráði við Hafnarfjarðarbæ að koma tólf börnum, sem eru með stöðu hælisleitenda, í grunnskóla. Stofnunin sótti í dag um skólavist fyrir fimm börn í Reykjavík, og þar af hafa þrjú þeirra fengið samþykki og hefja skólagöngu sína í næstu viku.

„Það eru tólf börn búsett í Hafnarfjarðarbæ en eru í þjónustu Útlendingastofnunar. Það standa yfir viðræður við Hafnarfjarðarbæ um hvernig staðið verði að skólagöngu þeirra, þannig að það er verið að vinna að því að koma málunum í samt lag. En þetta er eitthvað sem er að gerast í dag og á morgun,“ segir Skúli Á. Sigurðsson, verkefnastjóri hælissviðs hjá Útlendingastofnun.

Fjallað var um systkinin þrjú, sem nú hafa fengið inni í grunnskóla, í Fréttablaðinu í dag. Þau hafa verið búsett hér á landi frá því í júní en Útlendingastofnun lét hjá líða að sækja fyrir þau um skólavist, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir umboðsmanns barna og lögmanns fjölskyldu þeirra.

Sjá einnig: Systkinin komin inn í grunnskóla

Skúli segir að unnið sé að því að koma málunum í eðlilegra horf. Mál sem þessi séu nú í fyrsta sinn á borði Útlendingastofnunar.

„Slík mál hafa alltaf farið til sveitarfélaganna. Við teljum okkur ekki þurfa að breyta okkar verklagsreglum, því við erum að gera þetta í fyrsta skipti, heldur frekar koma upp þessu verklagi. Hingað til höfum við lagt áherslu á að finna fólki þak yfir höfuðið og koma því í grunnþjónustu,“ segir hann. Núna hins vegar sé fjöldi slíkra mála orðinn umtalsvert meiri en áður.

„Það varð sprenging í ágúst mánuði og fram í september en núna vinnum við að koma hlutunum í betra ferli,“ segir Skúli.

Sjá einnig: Fjölmargir vilja rétta fjölskyldunni hjálparhönd

Reglum breytt í fyrra

Börn hælisleitenda hafa alltaf átt rétt á að ganga í grunnskóla landins, þrátt fyrir kennitöluleysi, samkvæmt mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Sú hefur hins vegar ekki alltaf verið raunin með börn á leikskólaaldri, en í nóvember í fyrra varð sú breyting að öll börn ættu rétt á að ganga í leikskóla; með kennitölu eða ekki.

Alls eru sjö leikskólabörn í Reykjavík án kennitölu, fjögur þeirra eru komin inn í leikskóla, en skólavist hinna þriggja í ferli, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.


Tengdar fréttir

Skólastjóri Laugalækjarskóla býður systurnar Lauru og Janie velkomnar

Útlendingastofnun hefur haft samband við Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla og beðið um skólavist fyrir systkinin, Lauru, Janie og Petrit. Björn M. Björgvinsson skólastjóri Laugalækjarskóla staðfestir þetta. "Þær eru búnar að fá skólavist, það á aðeins eftir að ganga frá nokkrum formsatriðum, við þurfum örfáa daga til þess að undirbúa þær fyrir skólann,“ segir hann og segir skólann munu taka vel á móti þeim.

Börn hælisleitenda fá ekki skólavist

Þau Laura fimmtán ára, Janie þrettán ára og Petrit níu ára komu til Íslands í byrjun júní. Þau spyrja foreldra sína daglega hvenær þau fái að fara í skóla. Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir systkinin þrátt fyrir ítrekaðar áminningar foreldra barnanna, lögfræðinga og umboðsmanns barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×