Formúla 1

Pastor Maldonado áfram hjá Lotus 2016

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Pastor Maldonado er vægast sagt umdeildur ökumaður en hefur veglegan fjárhagslegan stuðning.
Pastor Maldonado er vægast sagt umdeildur ökumaður en hefur veglegan fjárhagslegan stuðning. Vísir/Getty
Lotus liðið hefur staðfest að Pastor Maldonado haldi sæti sínu hjá liðinu á næsta ári. Enn er óvíst hver verður liðsfélagi hans.

Maldonado hefur einungis náð 12 stigum á tímabilinu. Núverandi liðsfélagi hans, Romain Grosjean hefur náð 38 stigum. Maldonado hefur einungis lokið fimm keppnum af 13 á tímabilinu.

„Það er jákvætt fyrir framtíð liðsins að við getum staðfest opinberlega að Pastor Maldonado mun aka áfram fyrir okkur á næsta tímabili,“ sagði einn eiganda liðsins, Gerard Lopez.

„Það munu allir í verksmiðjunni í Enstone staðfesta að Pastor er frábær manneskja að vinna með og við þekkjum öll hæfileika hans á kappakstursbrautinni,“ bætti Lopez við.

„Pastor kom til okkar á margra ára samning svo þessi staðfesting er okkar leið til að sýna áframhaldandi traust til hans. Vonando getum við tilkynnt fleiri jákvæðar ákvarðarnir á næstunni,“ sagði Lopez að lokum.

„Það er frábært að liðið getur staðfest sæti mitt á næsta ári,“ sagði Maldonado.

„Miklar getgátur hafa verið um framtíðina en á meðan hef ég einbeitt mér að vinnu minni á brautinni og það er gott að framtíðin er ljós,“ hélt Maldonado áfram.

„Þetta tímabil hefur verið erfitt en gæði fólksins í Enstone hafa skinið í gegn. Mér líður eins og einn af fjölskyldunni og ég hlakka til að byggja ofan á vinnu þessa árs og skila betri úrslitum árið 2016,“ sagði Maldonado að lokum.


Tengdar fréttir

Webber: Maldonado er ekki nógu góður fyrir F1

Mark Webber fyrrum ökumaður Red Bull liðsins í Formúlu 1 segir vissan hóp ökumanna sem nú aka í Formúlu 1 ekki nógu góða til að verðskulda sæti þar.

Vettel: Við verðum á útopnu héðan í frá

Sebastian Vettel ók örugglega í dag og var aldrei ógnað. Hann stjórnaði bilinu á milli sín og Daniel Ricciardo að því er virtist auðveldlega. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Sebastian Vettel vann í Singapúr

Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark. Daniel Ricciardo varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen þriðji á Ferrari. Lewis Hamilton hætti keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×