Enski boltinn

Katrín að fá nýjan þjálfara hjá Liverpool

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Katrín og Beard.
Katrín og Beard. Vísir/Getty
Matt Beard, knattspyrnustjóri kvennaliðs Liverpool, hefur ákveðið að færa sig um set og skrifa undir hjá Boston Breakers í bandarísku kvennadeildinni. Mun Katrín Ómardóttir því leika undir nýjum þjálfara hjá Liverpool.

Hinn 37 árs gamli Beard tók við Liverpool árið 2012 eftir þriggja ára dvöl hjá Chelsea en hann hefur einnig stýrt liðum Charlton og Milwall í kvennadeildinni.

Undir stjórn Beard varð Liverpool enskur meistari tvö ár í röð árið 2013 og 2014 en lítið hefur gengið hjá liðinu á þessu tímabili. Liverpool situr í 6. sæti, 8 stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir en hann kom liðinu í undanúrslit WSL-bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×