Erlent

Höfða mál til að staðfesta eignarrétt apa á „selfies“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Tvær þeirra mynda sem deilan stendur um. Hér má sjá Naruto brosa sínu breiðasta.
Tvær þeirra mynda sem deilan stendur um. Hér má sjá Naruto brosa sínu breiðasta. mynd/wikimedia
Dýraverndunarsamtökin PETA hafa höfðað mál fyrir hönd sex ára gamals makakíapa til að fá úr því skorið hvort hann sé eigandi myndar sem hann tók fyrir fjórum árum. Deilur um eignarhald á myndinni hafa staðið yfir í ár og nú hefur enn einn aðili bæst við málið. Fjallað er um málið af Guardian.

Málið hófst fyrir ári er ljósmyndarinn sem kom myndavélinni fyrir, David Slater, taldi að hann ætti myndina. Fjöldi miðla á vefnum vildi hins vegar meina að enginn ætti myndina og því gæti hver sem er notað hana. Hafa þeir meðal annars neitað að taka myndina úr birtingu hjá sér.

Sjá einnig: Vill skoðun dómstóla á apa „selfie“

PETA lögðu kæru apans fram fyrir dómstólum í San Francisco í dag. Samtökin fara fram á að þau fái féð til vörslu fyrir hönd apans Naruto, sex ára gamals makakíapa.

Myndin var tekin árið 2011 í ferð Slater til Sulawesi í Indónesíu. Hann kom myndavélinni fyrir og beið þess að api nálgaðist hana og smellti af sér mynd. Afraksturinn var settur í bók sem hann gaf út skömmu síðar.

Sjá einnig: Háhyrningar stefna SeaWorld fyrir þrælahald

Slater vill meina að hann verði fyrir gríðarmiklu tekjutapi sökum þess að miðlar á borð við Wikimedia hafi myndina á síðum sínum án þess að greiða fyrir hana. Miðlarnir vilja hins vegar meina að enginn eigi myndina þar sem það var dýr en ekki manneskja sem smellti af.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem PETA fer fram með mál sem litlar líkur eru taldar á að nái fram að ganga. Fyrir þremur árum síðan höfðuðu samtökin til að mynda mál gegn SeaWorld þar sem þau töldu aðbúnað háhyrninga í garðinum jaðra við þrælahald. Dómari hafnaði málaflutningi samtakanna á þeim grundvelli að bann við þrælahaldi sneri aðeins að mönnum.


Tengdar fréttir

Vilja senda drápshvalinn heim

Háhyrningurinn Tilikum, sem þegar hefur drepið þrjár manneskjur, er hugsanlega á leið heim til Íslands.

Háhyrningar höfða mál gegn sædýrasafni

Alríkisdómari í Bandaríkjunum hafnaði því á mánudag að vísa frá máli sem gæti skorið úr um hvort dýr njóti sömu verndar gegn þrælahaldi og menn. Dýraverndarsamtökin PETA hafa höfðað málið fyrir hönd fimm háhyrninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×