Innlent

Minjastofnun vill að hafnargarður verði friðlýstur

Atli Ísleifsson skrifar
Garðurinn var reistur í tengslum við hafnargerð í Reykjavík á árunum 1913 til 1917.
Garðurinn var reistur í tengslum við hafnargerð í Reykjavík á árunum 1913 til 1917. Vísir/GVA
Minjastofnun Íslands hefur lagt til við forsætisráðherra að hafnargarður á lóðinni Austurbakki 2 í Reykjavík verði friðlýstur.

„Um er að ræða garð sem að grunni til er reistur í tengslum við hafnargerð í Reykjavík á árunum 1913-1917 en var færður fram um 6-7 metra árið 1928 í tengslum við vegabætur við höfnina. 

Málið er nú úr höndum Minjastofnunar Íslands sem getur þar af leiðandi ekki svarað neinum fyrirspurnum vegna erindisins,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni.

Ákvörðun Minjastofnunar er gerð á grundvelli  18., 19. og 20.gr. laga um menningarminjar nr 80/2012.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×