Matur

Mexíkósk matargerð

Eva Laufey skrifar
visir/eva Laufey

Í þriðja þætti af Matargleði útbjó Eva sannkallaða mexíkóska veislu. Litríkir og bragðmiklir réttir sem eru vinsælir víða um heim og ekki er það að ástæðulausu. Algjört lostæti.

Lárperumauk ‘Guacamole'

2 meðalstórar lárperur, vel þroskaðar.

Safi úr einni límónu

1 rautt chili, fræhreinsað

Handfylli af kóríander

¼ tsk. cumin

2- 3 hvítlauksrif

1 meðalstór rauðlaukur

Salt og pipar, magn eftir smekk

Smá ólífuolía

5 kirsuberjatómatar

Aðferð:

Setjið allt í matvinnsluvél og blandið vel saman þar til þetta verður að fínu mauki. Kryddið til með salti og pipar. Skerið ferska tómata í litla bita og blandið saman við með sleif. Setjið í skál og berið strax fram.

Ferskt salsa ' Pico de gallo'

1 askja kirsuberjatómatar

handfylli vorlaukur

handfylli ferskur kóríander

salt og pipar

Safi úr einni límónu

Aðferð:

Skerið allt mjög smátt og blandið vel saman í skál. Geymið í kæli í 30 mínútur áður en þið berið fram.

Nachos flögur

Skerið tortilla hveitikökur í litla bita, hitið bragðdaufa olíu á pönnu og steikið tortilla kökurnar í 2 – 3 mínútur. Snúið við að minnsta kosti einu sinni. Setjið flögurnar beint á eldhúspappír og kryddið til með sjávarsalti.

Hægeldaður svínhnakki með pikkluðum rauðlauk

1 msk ólífuolía

700 g svínhnakki

1 tsk salt

½ tsk pipar

1 msk paprikukrydd

½ msk cumin krydd

1 msk mexíkósk kryddblanda

1 laukur

4 hvítlauksrif

soðið vatn

Aðferð:

Skerið kjötið í bita og steikið upp úr olíu, kryddið til með salti, pipar, paprikukryddi, cumin og mexíkóskri kryddblöndu. Skerið einn lauk og pressið hvítlauksrif út í pottinn. Kreistið safann úr einni límónu yfir og hellið vatni í pottinn þar til vökvinn nær rétt svo yfir kjötið.Náið upp suðu og setjið lokið á pottinn og inn í ofn við 150°C í að minnsta kosti þrjár klukkustundir, því lengur því betra verður kjötið. Hrærið einstaka sinnum í pottinum og snúið bitunum við nokkrum sinnum.Flytjið kjötið yfir á bretti eða fat og notið gaffla til að rífa það í sundur.Berið kjötið fram ásamt tortilla kökum, pikkluðum rauðlauk, góðri sósu og límónusneiðum.

Pikklaður laukur

1 stór rauðlaukur

1 tsk sykur

1 dl hvítvínsedik

Aðferð:

Skerið laukinn í sneiðar, setjið í krukku eða skál. Blandið sykrinum og ediki saman og hellið yfir laukinn. Hrisstið krukkuna að vild og geymið í kæli í hálftíma.

Fiski takkós með Chipotle sósu og mangó salsa

Djúpsteiktur fiskur

200 ml hveiti

200 ml bjór

salt og nýmalaður pipar

500 g ýsa, skorin í bita

Aðferð:

Hrærið saman hveiti, bjór, salti og pipar í skál. Skerið fiskinn í bita og dýfið ofan í deigið. Hitið olíu í stórum potti, athugið að nota olíu sem þolir djúpsteikingu. Þið getið athugað hvort olían sé tilbúin með því að setja smávegis af deiginu út í og ef deigið flýtur upp er hún tilbúin. Setjið nokkra bita ofan í pottinn og djúpsteikið í nokkrar mínútur, gott er að snúa bitunum við að minnsta kosti einu sinni. Þegar fiskurinn er orðinn gullinbrúnn er hann tilbúinn og veiddur upp úr pottinum, setjið á eldhúspappír og kryddið til með salti og pipar.

Berið fiskinn fram með tortilla kökum, Chipotle sósu og mangó salsa.

Bragðmikil Chipotle sósa

150 ml sýrður rjómi

3 msk majónes

2 hvítlauksrif

½ tsk paprikukrydd

salt og nýmalaður

2 – 3 msk Chipotle salsa (magnið fer eftir smekk)

1 msk sítrónusafi

Aðferð:

Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Kælið í að minnsta kosti 30 mínútur áður en þið berið hana fram.

Mangósalsa

1 mangó

3 tómatar

½ rauð paprika

1/2 rauðlaukur

handfylli kóríander

jalepenos, magn eftir smekk

salt og nýmalaður pipar

smá ólífuolía

safinn úr 1 límónu

Aðferð:

Skerið allt hráefnið mjög smátt, blandið öllu saman í skál og bætið vökvanum við. Kryddið til með salti og pipar. Kælið í smástund áður en þið berið fram með fiskinum.


Tengdar fréttir

Nutella ostakaka

Eva Laufey kennir þér að henda í ostaköku í flýti

Æðislegt grænmetislasagna að hætti Evu Laufeyjar

Ný þáttaröð með Evu Laufeyju fór í loftið á fimmtudaginn síðastliðin á Stöð 2. Hún kann svo sannarlega sitt fag en hér að neðan kennir hún fólki að ótrúlega girnilegt grænmetislasagna.

Chia grautur og kjúklingasalat

Í öðrum þætti af Matargleði lagði Eva áherslu á einfalda og fljótlega rétti án þess að það kæmi niður á gæðum matarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×