Viðskipti innlent

Sérstakur saksóknari telur dómsformann í Aurum-málinu hliðhollan sakborningum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari í Héraðsdómi Reykjvaíkur í morgun.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari í Héraðsdómi Reykjvaíkur í morgun. vísir/gva
Munnlegur málflutningur um kröfu ákæruvaldsins þess efnis að Guðjón St. Marteinsson víki sæti í Aurum-málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Guðjón var dómsformaður í fjölskipuðum dómi í málinu en aðrir dómarar voru Arngrímur Ísberg, héraðsdómari, og Sverrir Ólafsson, sérfróður meðdómandi.

Eins og kunnugt er ómerkti Hæstiréttur í apríl síðastliðnum sýknudóm héraðdóms frá því í júní í fyrra vegna vanhæfis Sverris til að dæma í málinu. Sverrir er bróðir Ólafs Ólafssonar, eins stærsta eiganda Kaupþings fyrir hrun, en Ólafur hlaut fangelsisdóm í Al Thani-málinu.

Sagði sérstakan hafa vegið gróflega að starfsheiðri sínum

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, flytur málið. Telur hann að efast megi um óhlutdrægni dómsformanns vegna orða hans, annars vegar í tölvupósti til ríkissaksóknara sem sendur var í febrúar á þessu ári  og hins vegar í grein sem hann hugðist birta í Fréttablaðinu sumarið 2014 vegna ummæla sem höfðu voru eftir Ólafi Þór í fjölmiðlum stuttu eftir að dómur féll í fyrra.

Meðal annars var haft eftir Ólafi Þór að honum hafi verið ókunnugt um ættartengsl Sverris og Ólafs en dómsformaðurinn hefur haldið öðru fram og sagt saksóknara hafa verið meðvitaðan um tengslin.  

Í umræddum tölvupósti frá Guðjóni til ríkissaksóknara segir hann að sérstakur saksóknari hafi með ummælum sínum verið með ómaklegar aðdróttanir í hans garð og garð sérfróðs meðdómanda. Þá sagði Guðjón í blaðagreinininn sem hann ætlaði að birta að Ólafur Þór hefði vegið gróflega að starfsheiðri sínum.

Telur að í skrifunum birtist neikvæð viðhorf í garð saksóknara

Blaðagreinin var aldrei birt en hins vegar lögð fram sem gagn af hálfu verjenda í Hæstarétti þegar ómerkingakrafa ríkissaksóknara var tekin þar fyrir.

Telur sérstakur saksóknari það ljóst, bæði af tímasetningu tölvupósts Guðjóns til ríkissaksóknara og að hann lét verjendum sakborninga í té umrædda blaðagrein máli sakborninga til stuðnings, að dómsformaður sé hliðhollur þeirra málstað.

Þá gerði saksóknari jafnframt að umtalsefni að Guðjón ætlaði að birta umrædda grein í Fréttablaðinu en einn sakborninga í Aurum-málinu, Jón Ásgeir Jóhannesson, er giftur eiganda blaðsins, Ingibjörgu Pálmadóttur.

Að mati Ólafs Þórs birtast í skrifum dómsformanns neikvæð viðhorf í garð sérstaks saksóknara og megi því draga óhlutdrægni hans í efa. Ekki sé hægt að bera traust til dómsins í ljósi þess sem Guðjón hefur áður látið frá sér og því beri honum að víkja sæti að mati saksóknara.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×