Viðskipti innlent

Vísbendingar um stórar olíulindir hvetja til leitar á Drekasvæðinu

Kristján Már Unnarsson skrifar

Dýrasta olíuleit við Ísland til þessa á vegum sérleyfishafa hefst í kvöld þegar rannsóknarleiðangur tveggja skipa heldur á Drekasvæðið frá Austfjörðum. Um eitt hundrað manns taka þátt í verkefninu.

Rannsóknarskipið Oceanic Challenger sigldi inn til Reyðarfjarðar í Austfjarðaþokunni í morgun en um borð eru um 60 manns. Aðstoðarskip með 12 manns um borð kom síðdegis en saman halda þau svo í kvöld áleiðis á Drekasvæðið.

Kínverska ríkisolíufélagið CNOOC fer fyrir leitinni og eru fulltrúar þess komnir til Reyðarfjarðar til að taka þátt í verkefninu. Við komu skipanna til hafnar í dag mátti einnig sjá fulltrúa annarra handhafa sérleyfisins; norska ríkisolíufélagsins Petoro og íslenska félagsins Eykons. Fulltrúi Orkustofnunar og bæjarstjóri Fjarðabyggðar voru einnig viðstaddir.

Fulltrúar CNOOC, Petoro og Eykons hittust á Reyðarfirði í dag við komu skipanna.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

Athygli vekur að olíuleitin fer af stað á sama tíma og olíufélög halda að sér höndum um allan heim vegna verðfalls á olíu. 

„Þetta segir nefnilega dálítið margt um Drekasvæðið. Þar er möguleiki á að finna mjög stórar lindir,“ segir Heiðar Már Guðjónsson, stjórnarformaður Eykons, í viðtali við Stöð 2 á bryggjunni á Reyðarfirði. 

„Við erum staðfastari í trúnni en áður. Við erum náttúrlega að vinna með tveimur risafyrirtækjum, Petoro og CNOOC. Þeir þekkja þetta betur en við. Þau halda leitinni áfram ótrauð. Við erum mjög ánægð með það,“ segir Heiðar. 

Auk um sjötíu manns um borð í skipunum starfa um þrjátíu manns í landi við verkefnið, meðal annars við úrvinnslu gagna. Áætlað er að skipin verði 24 daga á Drekasvæðinu. Fyrirtækin eru þannig þegar farin að setja háar fjárhæðir í olíuleitina, bara þessi áfangi verkefnisins er talinn kosta um einn milljarð króna.

Olíurannsóknarskipið Oceanic Challenger siglir inn Reyðarfjörð í morgun.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

Skipin munu leita ummerkja olíu undir hafsbotni Drekasvæðisins með bergmálsmælingum en tilvist olíu þarf síðan að staðfesta með borunum. 

„Við erum með áætlun um að bora þrjár holur. Upprunalega ætluðum við bara að bora eina, - við erum komnir með það upp í þrjár. Þá fyrstu árið 2020, aðra 2022 og þá þriðju 2023. Þannig að við erum væntanlega upp úr 2018-2019 að fara að skipuleggja borunina,“ segir Heiðar Már Guðjónsson.


Tengdar fréttir

Olíuleitin hagstæðari vegna verðfalls á olíu

Enginn bilbugur er á sérleyfishöfum á Drekasvæðinu, þótt olíuverð hafi hrapað um helming. Talsmaður Eykons segir þvert á móti að nú verði olíuleitin ákjósanlegri og tilkostnaður töluvert lægri.

Þriðja olíuleitarleyfið á Drekann veitt í dag

Þriðja sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu verður formlega úthlutað við athöfn sem hefst núna klukkan tvö í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík.

Fyrsti olíurisinn kemur í leitina á Drekasvæði

Þriðja sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu verður formlega úthlutað við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í næstu viku, þann 22. janúar. Þetta verður stærsta sérleyfið til þessa í íslenskri lögsögu.

Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands

Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri.

Kínverjar mættir til að hefja olíuleitina

Leyfishafar á Drekasvæðinu undir forystu kínverska félagsins CNOOC ákváðu á fundi í dag að hraðar yrði farið af stað í olíuleitina en áætlanir gerðu ráð fyrir.

CNOOC vill flýta borun í Drekann

Fulltrúar kínverska olíufélagsins CNOOC kynntu samstarfsaðilum sínum í dag verkáætlun sem miðar við að boranir hefjist á Drekasvæðinu mun fyrr en áður var gert ráð fyrir.

Er það von um "elefant" sem lokkar á Drekann?

Olíumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, er í viðtali við Aftenbladet í Stavanger spurður um hvort hann telji að "elefant“ sé á Drekasvæðinu. Hugtakið "elefant“, eða fíll, er það sem norski olíugeirinn notar um risalindir, eftir stærsta landdýri jarðar, en það eru olíusvæði eins og Ekofisk, Statfjord, Troll, Gullfaks og Mjallhvít. Hugtakið "flóðhestur“ er svo notað um lindir af næstu stærð þar fyrir neðan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×