Innlent

Dóttir Olgu Færseth greindist með krabbamein: "Ofboðslegt kjaftshögg“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
„Annaðhvort gefst maður upp og leggst undir sæng en við tókum þann pólinn strax að ætla að sigrast á þessu og taka þetta svolítið með hnefunum,“ segir Olga Færseth, fyrrverandi landliðskona í knattspyrnu í Íslandi í dag. Kolfinna Rán, tveggja ára dóttir hennar og Pálínu Guðrúnar Bragadóttir greindist fyrr í sumar með illkynja krabbameinsæxsli í rasskinn.

Kolfinna Rán greindist með krabbamein í lok júní eftir að Olga og Pálína fundu á rass hennar bólgu sem þær héldu fyrst að Kolfinna hefði fengið við fall. Eftir að bólgan hjaðnaði ekki leituðu þær til lækna. Niðurstaðan var illkynja krabbamein og segir Olga að það hafi verið mikið áfall að fá fréttirnar.

„Við erum með alheilbrigða stelpu sem hefur varla veikst og er alveg rosalega öflug. Maður heldur bara að hún hafi dottið á bossann, það er engar aðrar bjöllur sem kveikja á því að þetta gæti verið eitthvað meira. Þetta var ofboðslegt kjaftshögg.“

Hafa safnað nærri tveimur milljónum fyrir SKB
Kolfinna Rán í veiðiferðOlga Færseth
Kolfinna Rán hefur verið í lyfjameðferð sem tekur sex mánuði og þótt að hún eigi erfiða daga inn á milli sýnir hún mikinn styrk þrátt fyrir ungan aldur.

„Hún er alveg ótrúleg. Hún tekur bara einn dag fyrir í einu. Börn eru þannig að þau eru ekkert að spá hversu veik verð ég eftir viku eða mánuð. Hún er bara alveg ótrúlega sterk.“

Olga og Pálína hafa stofnað hlaupahóp fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fram fer á laugardaginn sem ber heitið Áfram Kolfinna Rán. Hópurinn hefur þegar safnað tæplega tveimur milljónum krónum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Olga hvetur alla til þess að leggja sitt af mörkum og styrkja góð málefni.

„Við viljum bara hvetja fólk til að fara inn á www.hlaupastyrkur.is. Ég er ekki að biðja fólk endilega um að styrkja okkur. Þar eru fullt af flottum málefnum og þar getur fólk fundið sér málefni sem höfðar til þeirra.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×