Enski boltinn

Eva fær ekki lengur að koma á völlinn með Chelsea

Eva hugar að Cahill í leik með Chelsea.
Eva hugar að Cahill í leik með Chelsea. vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur ekki verið ánægður með vinnu læknisins Evu Carneiro upp á síðkastið. Hann gagnrýndi hana eftir leikinn gegn Swansea um síðustu helgi.

Í kjölfarið er búið að gera breytingar hjá félaginu. Eva verður enn læknir hjá aðalliðinu en fær ekki að mæta á æfingar, í leiki og á hótel liðsins. Hún mun eingöngu sinna mönnum á stofu sinni á æfingasvæðinu.

Þetta er mikill skellur fyrir marga unnendur enska boltans sem eru farnir að þekkja vel til Evu og hún er án vafa frægasti læknir deildarinnar.

Mourinho reiddist henni er hún reyndi að sinna Eden Hazard í uppbótartíma. Hann sagði að hún skildi ekki leikinn.

Ekki er víst að Eva sætti sig við nýja starfið og hún gæti því söðlað um á næstunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×