Sport

Katrín Tanja: Besta sem gat gerst að missa af leikunum í fyrra

Katrín Tanja Davíðsdóttir er titluð hraustasta kona í heimi eftir magnaðan árangur á leikunum í L.A.
Katrín Tanja Davíðsdóttir er titluð hraustasta kona í heimi eftir magnaðan árangur á leikunum í L.A. Vísir/Snorri
Hraustasta kona heims, Katrín Tanja Davíðsdóttir, kom heim til Íslands í dag og fékk blíðar móttökur frá vinum sínum hjá CrossFit Reykjavík.

Eins og flestum ætti að vera kunnugt um bar hún sigur úr býtum á heimsleikunum í CrossFit á dögunum.

Vísir var á staðnum er Katrín Tanja kom heim eftir tveggja vikna frí erlendis. Það frí var langþráð.

„Ég er búin að vera úti í tvo mánuði núna. Þetta var bara vakna, borða æfa og sofa allan þennan tíma. Ég hef svo nýtt síðustu tvær vikurnar í að hvíla mig og ná mér niður á jörðina," segir Katrín Tanja í spjalli við Kolbein Tuma Daðason.

Hún nýtti tímann líka til þess að skipuleggja næsta ár en það verður eflaust nóg að gera hjá henni eftir að hafa náð þessum stóra áfanga.

Æfingar hafnar að nýju

„Ég byrjaði að æfa aftur á mánudaginn," segir Katrín Tanja en hún er lítið fyrir að slá slöku við. Hvernig var fyrir hana að prófa að taka sér frí?

„Það var mikið að gera beint eftir heimsleikana og ég var alveg tilbúin að fara að gera ekki neitt. Það er mjög skrýtið að fara úr því að æfa kannski í átta tíma á dag yfir í að fara ekki einu sinni í æfingaföt. Fjórum dögum eftir að ég fór í frí kom löngunin aftur. Ég tók samt heila viku í frí og hreyfði mig ekki neitt. Fór svo rólega í eina viku en er komin aftur á fullt núna."

Katrin Tanja missti af leikunum í fyrra. Átti hún von á því að hún gæti farið alla leið núna?

Besta sem gat komið fyrir mig

„Að komast ekki á leikana í fyrra var í raun og vera það besta sem hefur komið fyrir mig. Þá komst ég að því hversu mikið ég vildi vinna þetta og hversu mikið ég væri til í að leggja á mig til þess. Ég kann að meta það betur núna. Í heilt ár hugsaði ég bara um leikana og að hafa misst af þeim hvatti mig áfram. Mitt hugarfar var að gera mitt besta og gefa allt," segir Katrín Tanja en getur hún lýst því hvernig henni leið er úrslitin lágu fyrir?

„Það var ólýsanlegt. Það er ekki hægt að lýsa þessu. Ég sigraði heiminn og þetta er besta tilfinning sem ég hef upplifað. Ég vissi þegar ég kláraði að ég hefði unnið en ég þorði ekki að fagna fyrr en það var staðfest. Ég mun vinna að því á hverjum einasta degi að finna þessa tilfinningu aftur."

Viðtal og móttökuna má sjá í heild sinni hér að neðan. Í upphafi heldur Evert Víglundsson ræðu til heiðurs heimsmeistaranum og í kjölfarið má sjá viðtalið við afrekskonuna.




Tengdar fréttir

Ég er stolt af vöðvunum

Katrín Tanja Davíðsdóttir er nýkrýndur heimsmeistari í crossfit. Við tekur annasamur tími, hún mun ferðast víða og verða þekktara nafn. Hún ætlar að nýta tækifærin sem bjóðast og hana dreymir um að verða íþróttafréttamaður eða leikkona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×