Íslenski boltinn

Meistaraflokkur Víkings heitir sektarsjóðnum á Olgu Færseth í Reykjavíkurmaraþoninu

Viktor Bjarki í leik gegn Keflavík.
Viktor Bjarki í leik gegn Keflavík. Vísir/Andri Marinó
Viktor Bjarki Arnarsson, leikmaður Víkings, tilkynnti í dag á Twitter-síðu sinni að sektarsjóður meistaraflokks félagsins í karlaflokki, færi sem áheit á Olgu Færseth, fyrrverandi markahrókinn, sem hleypur til styrktar Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn.

Olga hleypur 10 kílómetra til styrktar félagsins en 2 ára dóttir Olgu glímir við krabbamein. Hefur hún alls safnað 474.000 krónum í áheitum þegar þrír dagar eru í hlaupið.

„Sektarsjóður Víkinga rennur til Olgu Færseth/Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.Hvetjum lið til að gera það sama,“ skrifaði Viktor Bjarki en færslu hans má sjá hér fyrir neðan.

Fyrir þá sem vilja heita á Olgu má sjá síðu hennar hérna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×