Glamour

Glæsilegt galaboð DiCaprio

Ritstjórn skrifar
Leonardo DiCaprio og Elton John.
Leonardo DiCaprio og Elton John. Glamour/Getty
Góðgerðarsamtök leikarans Leonardo DiCaprio, The Leonardo DiCaprio foundation stóðu fyrir galakvöldverð í St Tropez á miðvikudagskvöld. 

Það kemur væntanlega engum á óvart að í boðinu voru leikkonur og fyrirsætur í meirihluta, en það virðist vera venjan þegar DiCaprio er nálægt.

Tilefni galakvöldverðarins var að samtökunum tókst að safna 40 milljónum dollara sem renna til umhverfismála. 

Var öllu til tjaldað í boðinu og tóðu þeir Elton John og John Legend upp og meðal gesta voru Heidi Klum, Joan Collins, Albert Mónakóprins, Goldie Hawn, Marion Cotillard, Naomi Campbell og Orlando Bloom.

Natasha Poly í Atelier Versace
Chrissy Teigen og John Legend létu sig ekki vanta
Irina Shayk í Atelier Versace
Petra Nemcova í Zuhair Murad
Jessica Stam
Kate Hudson og Lewis Hamilton
Marion Cotillard
Nina Dobrev
Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.







×