Glamour

Kate Moss og Jamie Hince að skilja?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Nú ganga sögur um að hjónin Kate Moss og Jamie Hince séu að skilja. Parið sást síðast saman opinberlega í mars.

Moss og Hince, gítarleikari hljómsveitarinnar The Kills, gengu í hjónaband í júlí 2011 en segja heimildarmenn sem þekkja til hjónanna að þau hafi ekki talað saman í margar vikur, en það hefur þó ekki fengist staðfest.

Það eru því komin fjögur ár síðan þau gengu í hjónaband, en þá vakti kjóll Moss sérstaklega mikla athygli en hann var hannaður af sjálfum John Galliano.

Jamie, Kate og dóttir hennar Lila Grace á brúðkaupsdeginum.
Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.







×