Innlent

Druslugangan vekur athygli langt út fyrir landsteinanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Talið er að um 30 þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni á laugardaginn.
Talið er að um 30 þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni á laugardaginn. Vísir/andri marinó
Erlendir fjölmiðlar fóru ekki varhluta af þeim gríðarlega áhuga sem Íslendingar sýndu Druslugöngunni sem fram fór síðastliðinn laugardag og endurspeglaðist í þátttöku á þriðja tug þúsunda göngufólks.

Þannig gerði kínverski miðillinn Xinhua sér mat úr göngunni undir yfirskriftinni „Drusluganga á Íslandi sýnir fórnarlömbum kynferðisofbeldis samstöðu.“

Í frétt Xinhua er drepið á því hvernig markmið göngunnar var að skila skömm þolenda kynferðisofbeldis til gerenda og segja drusluskömmun (e. Slut-shaming) stríð á hendur.

Íslenskir viðmælendur samstíga

Kínverski miðillinn tók skipuleggjenda göngunnar tali, þeirra á meðal Sunnu Ben Guðrúnardóttur, sem segir í samtali við Xinhua að sér þyki drusluskömmunin sem eigi sér stað í íslensku samfélagi „fáránleg“ og að málefnið sé mjög mikilvægt.

Saga göngunnar á Íslandi er þá einnig rakin en þetta var í fimmta sinn sem gangan er haldin hérlendis eftir að henni var ýtt úr vör í kanadísku borginni Toronto árið 2011.  

Xinhua rabbaði einnig við Maríu Rut Kristinsdóttur, talsmann göngunnar, en hún benti miðlinum á hvernig Íslendingar, sem og aðrir íbúar heimsins, tali lítið um kynferðisofbeldi. Fólk þaggi það frekar niður en að vekja máls á því.

„En með þessari Druslugöngu viljum við að fólk opni sig og tali um kynferðisofbeldi,“ sagði María.

Þá var mótmælandinn Lilja Jakobsdóttir tekin tali en háskólaneminn sagði við kínverska fjölmiðilinn að rétturinn yfir eigin líkama skipti sig miklu máli.

„Þú átt að geta ráðið hvað þú gerir við líkama þinn og enginn á að geta skilgreint þig út frá klæðaburði þínum eða komið fram við líkama þinn eins og þér hugnast ekki,“ sagði Lilja og bætti við að Íslendingar væru staddir í miðri byltingu.

Fjölmiðlarisar gera sér mat úr göngunni

Jamaíski miðillinn Jamaican Observer er meðal þeirra miðla sem hafa gert sér mat úr þessari umfjöllun Xinhua en miðlinn birti hana lítillega unna á vefsíðu sinni í gær.  

Það er þó ekki eini erlendi miðillinn sem fjallaði um Druslugönguna í gær en fjölmiðlarisinn Al Jazeera gerði slíkt hið sama undir fyrirsögninni „Íslenskar konur takast á við nauðganir og klámvæðingu.

Aldarafmæli kosningaréttar kvenna fær einnig pláss í umfjöllun Al Jazeera.
Í umfjöllun risans er stiklað á stóru í kvenfrelsisbylgjunni sem riðið hefur yfir landið að undanförnu, jafnt Free The Nipple sem og hátíðahöldunum vegna aldarafmælis kosningaréttar kvenna. 

Þá er Beauty Tips-byltingin reifuð og sagt frá því hvernig þúsundir hugaðra kvenna stigu fram og sögðu frá kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir undir yfirskriftum Þöggunar og Konur tala.

Gulu og appelsínugulu broskallarnir sem fylltu samfélagsmiðlana fá einnig sinn sess í umfjöllun Al Jazeera sem og rannsókn þeirra Hildar Antonsdóttur og Þorbjargar Gunnlaugsdóttur en þær leiddu í ljós að einungis 21 af 189 nauðgunarmálum sem komu inn á borð lögreglu árið 2008 enduðu með kæru. 

Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum er viðtalsefni Al Jazeera en í samtali við miðilinn segir hún mikilvægt að konur séu loksins að skila skömminni heim.

„Þær eru þó ekki einungis að lýsa því sem gerðist, þær eru að nafngreina gerendurnar sem er einnig mjög mikilvægt,“ segir Guðrún. Þannig hafi einn gerandi stigið fram og beiðst afsökunar formlega í fjölmiðlum eftir að farið var að varpa ljósi á málefnið. 

Umfjöllun Al Jazeera og viðtal miðilsins við fyrrgreindar konur, sem og Sögu Kjartansdóttur, má nálgast með því að smella hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×