Bíó og sjónvarp

Game of Thrones: Bakgrunnur Hardhome er frá Íslandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Myndir frá Djúpalónssandi voru notaðar til að skapa umhverfi Hardhome.
Myndir frá Djúpalónssandi voru notaðar til að skapa umhverfi Hardhome. Mynd/HBO
Orrustan við Hardhome er eitt umfangsmesta atriði sem tekið hefur verið upp fyrir hina vinsælu þætti, Game of Thrones. Til stóð að taka atriðið upp hér á landi, en hætt var við það vegna veðurs og vegna þess hve dagarnir eru stuttir á veturna.

Þess í stað var bakgrunnur atriðsins myndaður á og við Djúpalónssand á Snæfellsnesi. Starfsmenn framleiðslufyrirtækisins Pegasus tóku myndir úr dróna af sjó og á landi og sköpuðu úr því þrívíddarheim sem notaður var í bakgrunn orrustunnar.

Sjá einnig: Svona var orrustan við Hardhome tekin upp.

Hér að neðan má sjá myndband sem brellufyrirtækið El Ranchito Imagen Digital birti nýverið. Þar má sjá hvernig tæknibrellum var beitt til að skapa umhverfi Hardhome. Þar má einnig sjá hvernig bakgrunninum frá Íslandi er bætt við atriðið.

Gífurlega vinna fór í þetta atriði og tók átján daga að taka það upp. Þeir hefðu óneitanlega þurft að vera fleiri en það ef atriðið hefði verið tekið upp hér á landi. Þess í stað var það tekið upp í Írlandi.

Hér að neðan ræðir brellumeistari Game of Thrones um tæknibrellur þáttanna. Þær þykja betri en þekkist í flestum sjónvarpsþáttum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×