Glamour

Fékk óvænt hlutverk í myndbandi hjá Rihönnu

Ritstjórn skrifar
Sanam og Rihanna
Sanam og Rihanna Glamour/Instagram
Fyrir þrem mánuðum síðan var Sanam bara venjuleg 25 ára stelpa sem vann í blómabúð í Seattle.

Einn daginn fékk hún tilkynningu um að söngkonan Rihanna hafi byrjað að fylgja henni á Instagram. 

Sama dag sendi Rihanna henni skilaboð og sagði að hún væri með hugmynd sem hún vildi bera undir Sanam. Henni hafi fundist hún svo brjálæðislega töff að hún vildi endilega fá hana með. 

Sanam, sem heitir því frumlega nafni trustmedaddy á Instagram, fríkaði eðlilega út og sagði í viðtali við Vice „Þegar Rihanna sendir þér skilaboð, þá svararu!“. Tveimur dögum síðar var Sanam mætt til Los Angeles að leika í nýjasta myndbandi Rihönnu Bitch Better Have My Money.

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.





 
When u all wondering where the money at #bbhmm #bts

A photo posted by @trustmedaddy on Jul 1, 2015 at 9:25pm PDT

 
It's lit #BBHMM

A photo posted by @trustmedaddy on Jul 1, 2015 at 9:21pm PDT

 

Megaforce / RIHANNA / BITCH BETTER HAVE MY MONEY from iconoclast on Vimeo.






×