Handbolti

Ólöf Kolbrún aftur í markið hjá HK

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólöf Kolbrún hefur leikið 15 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Ólöf Kolbrún hefur leikið 15 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. vísir/stefán
Markvörðurinn Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir skrifaði í gær undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild HK.

Ólöf þekkir vel til hjá HK enda uppalinn hjá félaginu og lék með því allt þar til vorsins 2014 þegar hún lagði skóna á hilluna.

Ólöf tók skóna úr hillunni í vetur og lék með ÍBV seinni hluta síðasta tímabils.

Koma Ólafar eru góðar fréttir fyrir HK sem endaði í 9. sæti Olís-deildarinnar á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×