Matur

Blómkálssushi með grillaðri risarækju að hætti Eyþórs

Rikka skrifar

Eva Laufey kíkti í heimsókn til Eyþórs Rúnarssonar en hann sýndi henni snilldartakta í eldhúsinu. Eyþór er mættur aftur á skjáinn á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum með gómsæta sumar og grillrétti við allra hæfi.

Í fyrsta þættinum grillaði hann gómsæta T-bone steik með Chimichurri og ómótstæðilegu kartöflusalati. Í eftirrétt bauð hann svo upp á grillað epli með mjólkursúkkulaði og hnetusmjöri. Allar uppskriftir úr þáttunum má finna á Matarvísi.

Blómkálssushi með grillaðri risarækju

Blómkálshrísgrjón

1 haus blómkál

Fínt rifinn börkur af 1 lime

Sjávarsalt

Takið blöðin af blómkálinu og rífið það niður með rifjárni. Blandið  limeberkinum út í og smakkið blómkálið til með salti.

Grillaðar risarækjur

12 stk risarækjur

2 msk hvítlauksolía  

2 msk sojasósa

Safi úr ½  lime

1 tsk chili sambal oelek

2 stk grillspjót

Pillið skelina af risarækjunni og þerrið vel með eldhúsrúllu. Blandið öllu hinu hráefninu vel saman í skál og hellið yfir risarækjurnar. Látið standa í leginum í 2 tíma. Takið rækjurnar upp úr leginum og setjið á grillspjót. Setjið rækjurnar á heitt grillið og grillið í 2-2,5 mín á hvorri hlið. Takið af grillinu og saltið eftir smekk. Kælið.

Meðlæti í sushi rúllu

4 stk vorlaukur

1 stk avokadó (fullþroskað)

½ gúrka

½ mangó (fullþroskað)

½ poki klettasalat

4 stk nori blöð

japanskt majónes

Snyrtið vorlaukinn, skerið endann af honum og skerið eftir endilöngu. Skerið avokadóið niður í sneiðar og gúrkuna og mangóið niður í strimla. Leggið nori blöðin á skurðarbretti og dreifið blómkálshrísgrjónunum þétt yfir þau. Skiptið grænmetinu jafnt ofan á miðjuna á nori blöðunum. Skerið risarækjurnar í helminga og raðið ofan á grænmetið. Sprautið 1 rönd af japanska majónesinu yfir rækjurnar og rúllið rúllunni varlega upp. Berið fram með sojasósu og wasabi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×