Heilsa

Hlaupaveisla í Hafnarfirði um hvítasunnu

Elísabet Margeirsdóttir skrifar
Vísir/Hreiðar Júlíusson
Vísir/Hreiðar Júlíusson
Náttúruhlaup hafa notið sívaxandi áhuga íslenskra hlaupara og eru fjölmörg keppnishlaup haldin um land allt á sumrin. Á annan í hvítasunnu verður hið vinsæla Hvítasunnuhlaup Hauka haldið í þriðja sinn en mörgum hefur komið skemmtilega á óvart hve fallegt útivistarsvæði og góða hlaupastíga er að finna í útjaðri Hafnarfjarðar og við Hvaleyrarvatn.

 

Hlaupaleiðin býður uppá mikla fjölbreytni og er hlaupið upp og niður brekkur, í gegnum þéttan skóg,  meðfram  hrauni og uppá Stórhöfða þar sem er einstakt útsýni yfir Reykjanesið og allt Reykjavíkursvæðið.  Leiðin verður vel merkt og um 50 sjálfboðaliða koma að brautarvörslu og aðstoða á þremur drykkjarstöðvum. Á leiðinni má búast við mikilli skemmtun því sjálfboðaliðar munu skipta sér í lið og keppa sín á milli í að hvetja hlaupara áfram.

 

Boðið verður upp á tvær vegalengdir: 17,5 km og 14 km, en í þeirri styttri er ekki farið upp á Stórhöfða og erfiðleikastigið heldur minna.

 

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum aldursflokki, auk þess sem sigurvegarar í kvenna- og karlaflokki í 17,5 km fá afhendan í fyrsta skipti farandbikar sem hefur fengið nafnið Hvítasunnumeistarinn. Allir þátttakendur eiga möguleika á útdráttarverðlaunum og mun Sportís gefa yfir 10 pör af Asics hlaupaskóm.

 

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hlaupsins


Tengdar fréttir

Ofurhlaup á Esjunni

Næstkomandi laugardag verður Mt. Esja Ultra haldið í þriðja sinn.

Hlaupahátíð Ármenninga í Laugardalnum

Fjölskylduhlaup og Víðavangshlaup Ármanns var haldið í dag við frábærar aðstæður. Hlaupið var um stíga og brekkur dalsins og fengu allir brakandi ferskar gúrkur í verðlaun.

Bíddu aðeins ..

Það er jákvætt og hollt á allan hátt að taka þátt í hlaupahóp. Bæði er félagsskapurinn uppörvandi og þarna er saman kominn fólk á öllum aldrei með það sameiginlega markmið að bæta heilsuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×