Sport

Fékk bréf frá eiginkonu mannsins sem hún kyssti í Boston-maraþoninu

Þessi mynd er úr Boston-maraþoninu en þó ekki af fólkinu sem fréttin fjallar um.
Þessi mynd er úr Boston-maraþoninu en þó ekki af fólkinu sem fréttin fjallar um. vísir/getty
Saga af kossi í Boston-maraþoninu varð að frétt sem náði athygli allra fjölmiðla í Bandaríkjunum.

Kona frá Tennessee, Barbara Tatge, tók áskorun frá dóttur sinni í hlaupinu að kyssa myndarlegan mann. Á ákveðnum stað í hlaupinu bjóða háskólanemendur hlaupurum upp á koss.

Tatge kyssti myndarlegan mann og kossinn virtist hafa mikil áhrif á hana því hún reyndi síðan að hafa upp á manninum sem hún vissi ekkert um.

Fjölmiðlar gripu málið á lofti og fóru á fullt að auglýsa eftir manninum. Hann fannst á endanum en sá ekki um svara Tatge. Það gerði eiginkona mannsins en hún tók þessu öllu ansi vel.

„Við vorum mjög hissa þegar þessi frétt fór á flug. Ég er ekki reið og maðurinn minn hefur heldur betur fengið að finna fyrir því frá vinum okkar," skrifaði eiginkonan en þau hjónin kjósa að halda nafnleysi sínu. Hún skrifaði svo beint til Tatge.

„Þó svo þetta séu ekki endalokin sem þú varst að vonast eftir þá dáist ég að framtakssemi þinni og hugrekki. Til hamingju með hlaupið og gangi þér vel í framtíðinni."

Enginn rómantískur endir í þessari sögu Tatge en hún horfir fram á veginn og svaraði eiginkonunni.

„Þetta var svo fallegt, létt og vel skrifað bréf hjá henni beint frá hjartanu. Maðurinn er heppinn að vera giftur þessari konu," sagði Tatge og baðst um leið afsökunar á því ónæði sem hún hefði valdið hjónunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×