Heilsa

Skemmtun og keppni í Epic brautinni í Öskjuhlíð

Elísabet Margeirsdóttir skrifar
Fremsta hjólreiðafólk landsins sýndi fjölbreytta takta.
Fremsta hjólreiðafólk landsins sýndi fjölbreytta takta. Vísir/Árni F. Sigurðsson
Fjallahjólakeppni Kría Cycles fór fram í gærkvöldi í Epic brautinni í Öskjuhlíð, en hún er talin ein skemmtilegasta fjallahjólbraut landsins.

Keppnin sem var einnig annað bikarmót ársins í fjallahjólreiðum reyndi mikið á úthald og tækni.

Að þessu sinni sigruðu Ingvar Ómarsson úr Tindi og María Ögn Guðmundsdóttir úr HFR í A-flokki karla og kvenna.

Ingvar var nýkominn heim úr sterkri fjallahjólakeppni í Þýskalandi, en hann gerðist nýlega fyrstur Íslendinga atvinnumaður í hjólreiðum.

Bjarki Bjarnason úr Tindi fylgdi fast á hæla Ingvars og í þriðja sæti varð Óskar Ómarsson úr Tindi. Í kvennaflokki varð Björk Kristjánsdóttir úr Tindi í öðru sæti. 

Í B-flokki karla sigraði Gunnar Svanbergsson úr Tindi. Í B-flokki kvenna sigraði Katrín Atladóttir úr Tindi. Í unglingaflokki karla sigraði Gústaf Darrason úr Tindi.

Nánari úrslit má finna hér.

Vísir/Árni F. Sigurðsson
Áhorfendur skemmtu sér vel á meðan þeir fylgdust með fremsta hjólreiðafólki landsins stökkva fram á pöllum og sýna fjölbreytta takta.

BMX bræður sem slógu í gegn í Ísland Got Talent sýndu listir sínar fyrir keppni og leyfðu áhorfendum að taka þátt og reyna fyrir sér á pöllunum.

Fjölbreytt og spennandi hjólasumar er framundan og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi, en keppnisdagskrá sumarsins er að finna á Hjólamót.is.

Vísir/Árni F. Sigurðsson

Tengdar fréttir

Enginn hefur hlaupið Laugaveginn jafnhratt

Elísabet Margeirsdóttir hittir afrekshlaupara sem undirbúa sig undir erfitt mót í Frakklandi, fer yfir það helsta sem þarf af búnaði fyrir fjallaskíðin og hittir sigurvegara Enduro fjallahjólamótsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×