Körfubolti

Svona var stemningin í Ljónagryfjunni þegar Bonneau negldi þristinn | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stefan Bonneau tryggði Njarðvík sigurinn í gær.
Stefan Bonneau tryggði Njarðvík sigurinn í gær. vísir/stefán
Bandaríkjamaðurinn Stefan Bonneau tryggði Njarðvík sigur á KR, 85-84, með magnaðri þriggja stiga körfu þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum Dominos-deildarinnar í gærkvöldi.

Hér að neðan má sjá sigurþristinn sem og lokasókn KR þar sem Michael Craion fór illa að ráði sínu.

Bonneau, sem átti erfitt uppdráttar í fyrsta leiknum í Vesturbænum, skoraði 34 stig, tók átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

„Alla stráka dreymir um að taka svona skot. Sigurskotið á lokasekúndunum. Þetta er það sem við æfum allir sem smástrákar,“ sagði sigurreifur Bonneau við Vísi eftir leikinn í gærkvöldi.

Ljónagryfjan var pakkfull í gærkvöldi og stemningin frábær eins og hún hefur verið í úrslitakeppninni. Þeir stuðningsmenn Njarðvíkur sem höfðu áfram trú á sínu liði eftir skellinn í DHL-höllinni fengu flottan leik og geggjaðan endi.

Allt ætlaði um koll að keyra í stúkunni þegar Bonneau negldi þristinn eins og búast mátti við, en stemninguna má sjá í skemmtilegu myndbandi hér að neðan.

Það var hann Valli á Ungó í Reykjanesbæ sem fangaði stemninguna í gærkvöldi en myndbandið er birt með góðfúslegu leyfi hans.

Liðin mætast þriðja sinni á sunnudagskvöldið í DHL-höllinni, en sá leikur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

Tarf ekki ad segja meira !!!!!!!!!Helllfu.......yaasaass

Posted by Valli Gooner on Thursday, April 9, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×