Matur

Uppskriftir úr Sælkeraheimsreisunni

Rikka skrifar
visir/valamatt

Vala Matt fór nýlega af stað með nýja þáttaröð á Stöð 2, Sælkeraheimsreisuna. Þar heimsækir hún fólk hvaðanæfa að úr heiminum og eldar með þeim dýrindis máltíðir. Í síðasta þætti heimsótti hún fjölskyldu frá Nepal sem býr hér á landi.

Lamba pottréttur

4x lambalærisneiðar 

3-5 matskeiðar olía

1 laukur

5 hvítlaukslauf 

Smá bútur af engiferi

2 niðurskornir tómatar 

Kóríeanderlauf sem skraut

1 teskeið fenugreek

1 matskeið Kóriander duft

1 matskeið Cumin

2 teskeið túrmerik

1 matskeið Garam masala 

Salt eftir smekk

Við byrjum á að skera niður kjötið í smáa bita og svo marinerum við kjötið, með beininu, í kryddi, þ.e. í 1 teskeið túrmeriki, 1 matskeið  kóríander, 1 matskeið cumin, 1 matskeið Garam masala og salt eftir smekk (en ég spara ekki saltið)

3-5 matskeiðar olía á heita pönnuna (millihiti á eldavél)

Þegar pannan er orðin heit þá setjum við 1 teskeið af fenugreek á pönnuna og passa að það brenni ekki, á að vera passlega brúnt.

Skera niður 1 lauk og setja á pönnuna og brúnum hann. Þá skerum við hvítlaukslaufin og engiferið mjög smátt og bætum við pönnuna. Svo blöndum við túrmerikinu saman við þessa blöndu.

Nú getum við sett maríneraða kjötið á pönnuna og hrærum í með sleif. Þegar við höfum blandað kjötinu saman við þá setjum við niðurskornu tómatana út í og hrærum. Svo leyfum við þessu að malla með loki í 15 mínútur og hrærum öðru hvoru í.

Á meðan getum við smakkað og bætt við kryddi ef við viljum, en aldrei túrmeriki aftur (ef þú vilt hafa það sterkt má bæta við chilli eftir smekk)

Nepalskt kartöflusalat

½ agúrka

6-8 stórar kartöflur, soðnar

1/2 laukur

1 matskeið olía

1 teskeið túrmerik

Sítrónusafi af einni sítrónu

Kóríanderlauf eftir smekk

Salt eftir smekk

Byrjum á að setja sesamfræ á pönnu og ristum við háan hita þangað til þau verða ljósbrún. Svo tökum við sesamfræin og setjum í mortél (getur líka verið matvinnsluvél) og myljum þau.

Soðnu kartöflurnar eru skrældar og skornar niður í bita. Svo skerum við gúrkuna og laukinn í smáa bita. Þá setjum við niðurskornu kartöflurnar, gúrkuna og laukinn í stóra skál og blöndum sesamfræunum í skálina. Því næst setjum við saltið og sítrónusafann út í og blöndum vel.

Til að fá góðan lit á salatið þá setjum við 1 matskeið af olíu á pönnu og steikjum eina teskeið af túrmeriki við lágan. Svo bætum við þessu í skálina og hrærum vel. Til að skreyta þá setjum við kóríanderlauf ofan á salatið í lokin.

Gundruk pottréttur

3 matskeiðar olía

1 laukur

3 hvítlaukslauf 

Smá af engiferi

½ bolli sojabaunir

2 tómatar

Kóríanderlauf eftir smekk

1 teskeið fenugreek

1 teskeið túrmerik

1 teskeið kóríander duft

1 teskeið cumin duft

1 teskeið karrí 

Salt eftir smekk

½ líter hrísgrjónasoð (sem fékkst þegar hrísgrjónin voru soðin)

Við setjum 3 matskeiðar af olíu á meðalheita pönnu. Þá setjum við 1 teskeið fenugreek á pönnuna. Þegar fenugreekið er orðið brúnt þá skerum við niður lauk og bætum á pönnuna. Við steikjum laukinn þangað til hann er orðinn ljósbrúnn. Þá setjum við eina teskeið af túrmeriki á pönnuna.

Þá tökum við 3 hvítlaukslauf og smá af engiferi og setjum í mortél og myljum og blöndum saman. Þessu er svo bætt á pönnuna.

Þá bætum við hálfum bolla af sojabaunum við og steikjum. Þegar sojabaunirnar eru steiktar, þ.e. orðnar brúnar, þá blöndum við gundruk-inu saman við. Svo skerum við tómatana niður smátt og bætum út í. Þessu hrærum við sama við og leyfum að malla í 5 mínútur á meðan við hrærum í og kremjum tómatinn. Nú blöndum við kryddinu saman við.

Svo hellum við hrísgrjónasoðinu út í og hrærum vel. Þá setjum við lokið á pönnuna og bíðum eftir suðu og þá er það tilbúið. Í lokin getum við bætt við kóríanderlaufum til að skreyta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×