Glamour

Nýtt trend fyrir haustið - baktöskur

Elísabet Gunnarsdóttir skrifar
Fjórar fengilegar í sölu núna
Fjórar fengilegar í sölu núna
Áberandi af tískuvikunum í ár er ný og uppfærð útgáfa bakpoka. Það má segja að uppáhalds fylgihlutur skólafólks hafi útskrifast og sé kominn í þroskaðari og fágaðari búning - baktöskuna.
 
Bakpokar hafa eitthvað verið í sviðsljósinu undanfarið sem eftirtektarverðir fylgihlutir á pöllunum síðastu tímabila, en þar má til dæmis nefna skínandi græna hermannapokann hjá Marc Jacobs fyrir sumarið 2015 og rebel útgáfuna sem Chanel sýndi okkur sumarið 2014. 
 








Í ár sást tískudrottningin Sofia Sanchez de Betak til að mynda með M2Malletier M2 baktöskuna, sem er ekki enn komin á markað en von er á haustið 2015. Bakpokinn svokallaði er nær því að vera falleg handtaska, en þó með tveimur axlarböndum. 



Þetta nýja trend gefur okkur tækifæri á því að bera töskuna á bakinu á leið til vinnu, en bera hana síðan sem handtösku inná vinnustað, svo dæmi sé tekið. Það getur líka hentað okkur vel í íslenska verðurfarinu að hafa töskuna á bakinu og hendurnar fríar fyrir góða hanska. 
 
 
 Fréttinni fylgja 7 baktöskur sem skila þér “coolest look on the block” titlinum.

3. 1 Phillip Lim 

Verð: 124.000

H&M

Verð: 3.400

PCC - Gallerí 17 

Verð: 19.995 

Moschino - Net-a-Porter

Verð: 132.000

ZARA

Verð: 9.995

&Other Stories

Verð: 16.990

INDISKA

Verð: 22.995





Elísabet Gunnars bloggar - HÉR






×